Bibbi bloggar um Evróputúr Skálmaldar: München

Skálmöld er nú á tæp­lega 7 vikna túr um Evrópu. Dagarnir eru afskap­lega við­burða­ríkir og aðstæður oft afskap­lega skemmti­legar. Snæbjörn, bassa­leik­ari og texta­höf­undur sveit­ar­innar, heldur úti dag­legu bloggi á vef Kjarnans þar sem hann lýsir hinu goð­sagna­kennda rokk­ara­lífi. Táfýla, blóð, sviti, tár og auð­vitað rokk & ról beint í æð.

Ég vakn­aði kannski sirka tvö og þá fann ég engan. Ég ráf­aði aðeins um og end­aði með að róta draslinu okkar inn á venjúið með dyggri hjálp frá stór­kost­legum lókal­mönnum. Eftir það fann ég mér bak­her­bergi og sett­ist niður. Stuttu síðar mætti mér Þráinn, hann hafði vænt­an­lega verið sof­andi í koj­unni sinni en ég bara hrein­lega ekki áttað mig á því. Strák­arnir tínd­ust svo inn smám saman, flestir höfðu fundið sér kaffi­hús hér nálægt en Halli hafði þó fyrir því að drusl­ast niður í bæ. Hann sá kirkju og eitt­hvað svona kósí og bar sig vel þegar hann kom til baka.

Ég man gærkveldið ekki vel. Við spil­uðum þó Kana fram eftir öllu, Baldur tók við af Halla en sló í upp­hafi þann varnagla að hann kynni ekki að spila þetta spil. Það var auð­vitað rangt og hann varð fljót­lega óþol­andi góður í þessu líkt og í öllu öðru sem hann tekur sér fyrir hendur. Við spil­uðum playlist­ann „Íslenskt óldskúl“ sem stór­vinur okkar Haukur Viðar setti saman á Spotify fyrir ekki svo löngu. Ég veit ekki af hverju ég hafði haft vit á því að hlaða honum niður á offline mode en þetta er besti playlisti í heimi. Ellý, Haukur, Raggi og allt þetta meist­ara­lega sem við hin byggjum svo á. Endilega tékkið á þessum lista, hann hentar við hvert ein­asta tæki­færi.

Og svo bara sofn­aði ég held ég. Ég man ekk­ert hvað klukkan var eða hvað gerð­ist næst, ég bara logn­að­ist út af í koj­unni. Og svaf bara nokkuð vel.

[caption id="attachment_14055" align="alignnone" width="4896"] Það er aðeins einn Þráinn Árni Bald­vins­son úr Torfu­nesi í Kinn. Og hann er með sól­gler­augu.[/caption]

Ég logg­aði mig inn á alnetið þarna rétt áður en Þrási fann mig og sá þá um leið að Skálmöld er til­nefnd til 9 tón­list­ar­verð­launa. Fyrir þunnan mann var það ákveðið áfall, ég verð alltaf meyr í þynn­kunni og mér fannst þetta næstum því of mikið. Við leggjum hart að okkur með Skálmöld en búumst svo sem ekki við neinu í stað­inn. En þetta er vissu­lega við­ur­kenn­ing fyrir allt harkið. Mér þykir mest vænt um að sjá að Flexi okkar skuli vera til­nefndur fyrir pródús­er­ingu á Með vættum og auð­vitað er gaman að vera til­nefndur fyrir texta­smíð. Og svo auð­vitað allt hitt. Jább, þetta gladdi her­búðir Skálmaldar svona á síð­ustu metr­unum.

Svo varð dag­ur­inn eðli­legur. Reyndar skal nefna að við höfum spilað á þessum tón­leika­stað áður, það var árið 2011 og er senni­lega það gigg sem við höfum blótað okkur hve mest fyrir frá upp­hafi. Þá ein­hvern veg­inn virk­uðu hlut­irnir ekki nógu vel og við vorum ekki nógu góðir. Ég setti þetta í blogg á ver­ald­ar­vef­inn þá en sú ann­ars flokks blogg­síða hvarf ekki svo löngu síðar. Ég á þetta þó allt í Word-skjölum og gæti jafn­vel leitað að þessu síðar. Já eða jafn­vel núna?

„München, Þýska­landi 14. októ­ber 2011

Gigg kvölds­ins var okkar versta hingað til. Ekki það að við höfum verið sér­stak­lega lélegir en eitt­hvað kom bara ekki heim og saman. Ekki verða þeir sam­ork­andi þættir sem þar komu að taldir upp hér, ekki allir í það minnsta. Krádið var erfitt, en ver­andi fyrsta band á svið í túrnum höfum við oft staðið frammi fyrir því. Venju­lega tekst okkur að draga fólkið á gólfið en það tókst ekki nema að litlu leyti í kvöld. Vit­an­lega á aldrei að afsaka neitt, en svo var það nú víst að margir af þeim sem voru ekki á gólf­inu fyrir framan okkur voru að horfa á sjón­varpið. Og þeir voru víst inni í salnum en öllu aftar. Já þetta hljómar kannski und­ar­lega en það sem við ekki vissum þegar við lögðum af stað í prógramið var það að aft­ast í salnum voru víst nokkur sjón­vörp og þeim svona líka ljóm­andi spenn­andi leikur í Búndeslíg­unni, Werder Bremen og Buyern þeirra München-búa. Heima­mönnum fannst það meira spenn­andi en ein­hver lítt þekkt hljóm­sveit frá Íslandi.“

Þannig hljóm­aði færslan sú. Þess vegna var nokkuð ljóst að við áttum harma að hefna. Við fengum mat, ást­ar­lausan með öllu, fisk í ein­hverju steinra­spi sem skildi ekk­ert eftir sig. En aldrei þessu vant varð það okkur til tekna. Það skýrist hér aðeins síðar. Og svo gigg.

Þetta gigg tókum við af alefli og ger­sam­lega slátr­uðum því sem fyrir varð. Krádið ætl­aði rétt að reyna að vera okkur erfitt en þau áttu séns. Við spil­uðum geysi­lega vel, létum alla finna fyrir okkur og öllum illum látum. Á end­anum fengum við ofboðs­legar kveðjur frá fólk­inu sem ætl­aði ekki að sleppa okkur af svið­inu. Sigur, fulln­að­ar­sigur og nú getum við komið hingað aftur án þess að skamm­ast okkar.

Venju­lega höldum við rak­leiðis fram á meðal fólks eftir gigg til að blanda geði við pöp­ul­inn. Það er í fyrsta lagi mjög gaman en í annan stað ýtir það mjög undir varn­ings­sölu. Þar áritum við það sem fyrir verður, sitjum fyrir á myndum og svörum spurn­ingum. Þetta er ekk­ert alltaf gaman og raunar eitt­hvað sem maður nennir ekk­ert endi­lega að gera þegar maður kemur löð­ur­sveittur af svið­inu. En þetta gerum við samt og á end­anum verður þetta eig­in­lega alltaf mjög gaman. Maður má nefni­lega ekki láta þæg­inda­fíkn­ina taka yfir skemmti­leg­heitin.

Þetta gerðum við hins vegar ekki í dag.

Hjörtur heitir maður og er búsettur hér í borg. Hann er móð­ur­bróðir Þrása, er mikið snill­ings­menni, er í ein­hverri stór­kost­legri vinnu hjá fyr­ir­tæki sem tryggir trygg­inga­fé­lög og á BMW. Hann vinnur við að spá fyrir um nátt­úru­ham­farir og hryðju­verk. Ég spila bara á bassa sko. Hann hefur komið að sjá okkur í öll þau skipti sem við erum á gigga hér í nálægð og svo var einnig nú. Hjörtur var með plan. Eftir gigg tókum við lest­ina tvö stopp, röltum í fimm mín­útur og vorum þá komnir á mik­inn stór­kost­leg­heita­stað. Ég held að ég fari með rétt mál ef ég segi að þessi staður sé alda­gam­alt brugg­hús. Þarna eru borð og bekkir sem minna á upp­hafs­at­riði í góðu D&D-ævin­týri, bjór flæðir um allt og svo þessi óskap­legi mat­seð­ill. Hjörtur pant­aði handa okkur líterskrúsir af öli og svínaskanka. Hér þarf ekki að fjöl­yrða, þetta er besti maður sem ég hef borðað síðan ég yfir­gaf Seilgrand­ann í októ­ber. Mikið var gott að fisk­ur­inn frá í dag skyldi vera svona ómerki­legur. Svo drukkum við aðeins meira og tókum lest­ina til baka.

Klukkan er 1.31 og strák­arnir eru inn á venjúi, ásamt Hirti, og partýið rétt að byrja. Ég er einn í rútu fyrir utan Robert sem er sof­andi. Brottför er klukkan fjögur. Ég má ekk­ert vera að þessu, nú pakka ég tölv­unni og tek þátt í gleð­inni.

Þetta var meist­ara­legur dagur.

Meist­ara­legt dags­ins: Hjörtur og svínaskank­inn.

Sköll dags­ins: Fisk­ur­inn sem varð meist­ara­legur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár