Topp 10: Undarlegar jólahefðir

Jóla­hefðir eru ómissandi hluti af jóla­há­tíð­inni. Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur kaf­aði ofan í alþjóð­legar jóla­hefðir, og setti saman lista yfir tíu jóla­hefðir sem verða að telj­ast stórfurðu­legar, sumar hverjar í það minnsta. En lík­lega þjóna þær þó til­gangi sínum; að vekja gleði.

10. Ástralía


Jólin eru um hásumar í landi and­fætling­anna og jóla­hefðir þeirra bera keim af því. Ein helsta jóla­hefð Ástrala er að fara í pikknikk niður á strönd. Strend­urnar eru fullar af fólki. Fólk tekur með sér gervi­jóla­tré og jafn­vel bún­inga, skellir sér í sund og grillar rækjur. Auðvitað eru brim­brettin ekki langt undan. Í raun má segja að það sé eitt stórt jóla­partí á strönd­inni sem byrjar um það bil viku fyrir jóla­dag og endar ekki fyrr en á nýju ári. Stærsta partíið er á hinni geysi­vin­sælu Bondi strönd við Sydney.

 

9. Mexíkó


Í borg­inni Oaxaca í Mexíkó er á jól­unum haldin hátíð til heið­urs radísum. Sérlega færir útskurð­ar­meist­arar skera út radísur og annað rót­ar­græn­meti og verð­laun eru veitt fyrir fal­leg­asta útskurð­inn. Radís­urnar eru sér­stak­lega rækt­aðar fyrir keppn­ina, þ.e. þær eru látnar vaxa lengi í jörð­inni og fá þá oft óvenju­lega lögun. Þessi hefð er rúm­lega ald­ar­gömul og í seinni tíð hefur þetta aukið virki­lega ferða­manna­straum­inn til borg­ar­innar.


8. Þýskaland


Í Bæj­ara­landi á jóla­sveinn­inn hjálp­ar­sveina sem kall­ast Buttnmandl. Þeir eru nokk­urs konar púkar sem eru umvafðir strái og utan um þá miðja eða á bak­inu hanga kúa­bjöllur. Þeir hlaupa um og eru með mik­inn hávaða og eiga að hræða burtu illa anda og vekja móður nátt­úru úr svefni. Þeir eru samt einnig illir enda eru þeir púkar. Fólk sem fylgist með á að syngja helg­isöngva, biðja bænir og skvetta helgu vatni á þá til að flæma þá í burtu. Þetta er allt mjög rugl­ings­legt.

 

7. Bandaríkin


Und­ar­leg­asta jóla­skraut sem til er er ábyggi­lega jólagúrkan. Hún er ekki bara gúrka, heldur súr gúrka úr gleri, sem falin er á jóla­trénu. Sá sem finnur hana á að verða heppin fram að næstu jólum og sums staðar fær sá hinn sami gjöf að launum. Því hefur verið haldið á lofti að þetta sé æva­gömul þýsk hefð en fyrir því er eng­inn fótur. Að öllum lík­indum á þetta upp­runa sinn í amer­ísku versl­un­ar­keðj­unni Woolworths seint á 19. öld. Sérstök jólagúrku­há­tíð er haldin í bænum Berrien Springs í Michigan fylki.


6. Spánn


Nánar til­tekið í Kata­lóníu og nær­liggj­andi svæðum er stillt upp helgi­myndum (styttum af fæð­ingu krists) eins og víð­ast hvar nema ávallt er Caganer lát­inn fylgja með. Caganer er klæddur hefð­bundnum kata­lónískum klæðum með rauða húfu........................og að kúka. Þessi hefð er alda­gömul og ástæður fyrir henni ekki alveg á tæru. Mögulega til þess að gefa fólki mennska teng­ingu við helgi­dóm­inn. Í dag þykir þetta mjög fyndið og seldar eru Caganer-styttur af alls kyns frægu fólki.........að kúka.


5. Japan


Hvað er jóla­legra en bökkett af KFC með brúnni sósu og frönskum? Í um 40 ár hafa Japanir flykkst á veit­inga­staði ofurstans Sanders frá Kentucky á jól­unum til þess að borða saman djúp­steikan kjúkling. Þessi hefð á rætur sínar í vel heppn­aðri aug­lýs­inga­her­ferð á átt­unda ára­tugnum sem kall­að­ist „Kurisumasu ni wa kentakkii!“ Panta þarf borð með margra mán­aða fyr­ir­vara og boðið er upp á sér­stakan jóla­mat­seðil, þar sem t.d. er hægt að fá kampa­vín. Jólin skipa ekki stóran sess í menn­ing­ar­lífi Japans en fara þó stækk­andi.


4. Wales


Milli jóla og nýárs halda Wales-verjar upp á Mari Lwyd, gráu mer­ina. Þá klæða þeir sig í hvítt eða grátt lak, setja á sig haus­kúpu af hrossi, valsa um bæinn og syngja. Fjöldi fólks fylgir hverri meri. Þetta þykir eðli­legt. Bæði er hægt að syngja á ensku og vellsku. Þetta er forn­kelt­neskur siður, lík­lega trú­ar­legur, en upp­runinn er svo­lítið í móðu. Þetta lagð­ist nán­ast af á sein­ustu öld en hefur verið að koma sterkt inn aftur með vax­andi þjóð­ar­með­vit­und Wales-búa.


3. Holland


Hol­lend­ingar eiga sinn jóla­svein og hann heitir Sinterklaas. Hann á þjón sem kall­aður er Svarti Pétur eða Zwarte Piet. Hann er klæddur í 17. aldar föt, með krullað hár og svartur í framan. Sumir segja að hann sé Mári eða Eþíóp­íu­maður en aðrir að hann sé svartur í framan vegna sóts úr skor­steinum sem hann fær þegar hann og jóli gefa gjafir. Hann gefur ein­ungis þægum börnum gjafir. Óþekk börn flengir hann með kústi eða setur í poka og fer með til Spánar. Það þykir því einkar jóla­legt að setja upp blackface í Hollandi þó að það sé tabú víð­ast hvar ann­ars staðar.


2. Austurríki


Krampus er nokk­urs konar Grýla Aust­ur­rík­is­manna. Nema hann er miklu hræði­legri og hann er alls ekki dauður eins og Grýla. Hann er með þykkan feld, hófa, horn og er eins og djöf­ull eða ófreskja í framan. Hann hræðir börn með því að klingja bjöllum og keðjum og gefur óþekkum börnum við­ar­spýtu í skó­inn. Sagt er að hann ræni verstu börn­unum, drekki þeim, étur þau eða fer með þau beina leið niður í hel­víti. Þann 5. des­em­ber er haldin sér­stök hátíð fyrir hann, Krampusnacht, sem minnir meira á hrekkja­vök­una en jólin.


1. Katalónía


Jóla­drumbur­inn Tio de Nadal er kata­lónskur siður. Fólk tekur venju­legan tré­drumb og málar á hann and­lit. Frá 8. des­em­ber og fram að jólum þarf að gefa honum að borða á hverjum degi og breiða yfir hann teppi svo honum verði ekki kalt. Á jóla­dag er drumbur­inn tek­inn og settur hálfur í eld­stæði, þar sem honum er skipað að kúka. Þetta er gert með því að lemja hann með prikum og syngja lög um drumbinn. Drumbur­inn kúkar svo ýmsum góð­gætum eins og sæl­gæti, hnetum og fíkjum. Það sein­asta sem hann kúkar er svo síld og laukur.

Eitt af lög­unum um drumbinn:

Caga tió, kúk­aðu drumbur
caga torró, kúk­aðu núggati,
avella­nes i mató, hesli­hnetum og mató-osti
si no cagues bé ef þú kúkar ekki vel
et daré un cop de bastó. þá lem ég þig með priki
caga tió! kúk­aðu drumbur!

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár