Herberia lýkur frumfjármögnun - fyrstu lyfin á markað

Nýtt íslenskt lyfja­fyr­ir­tæki, Herberia, hefur nú lokið frum­fjár­mögnun sem mun gera því kleift að koma fyrstu lyfj­unum á markað á næsta ári. Herberia hefur nú samið við fjár­fest­inga­fé­lagið Einvala fjár­fest­ing ehf. um fyrstu fjár­mögnun félags­ins. „Við kynnt­umst Herberia á vett­vangi Startup Reykja­vík og höfum unnið með fyr­ir­tæk­inu í nokkra mán­uði að sam­ræm­ingu mark­miða og upp­setn­ingu fjár­fest­ingar og fjár­öflun,” segir Skúli Valberg tals­maður Einvala fjár­fest­ingar, í til­kynn­ingu vegna fjár­mögn­un­ar­innar. „Margir sam­virk­andi þættir gengu upp í skoðun okkar á félag­inu, m.a. að það geislar af fag­mennsku, teymið hefur mikla þekk­ingu og reynslu í fag­inu og mark­aðstæki­færið er spenn­andi og alþjóð­legt. Lyfja­greinin á Íslandi er ein þeirra þekk­ing­ar­greina sem reynst hefur far­sæl og reynsla og þekk­ing hefur skap­ast í kringum þau fjöl­mörgu fyr­ir­tæki sem sprottið hafa upp í gegnum árin og sam­starf við háskólaum­hverfið verið mikið.“

[caption id="attachment_14005" align="alignnone" width="4447"] Ný stjórn og fram­kvæmda­stjóri Herberia.[/caption]

Fyr­ir­tækið sér­hæfir sig í þróun og mark­aðs­setn­ingu á skráðum jurta­lyfjum við vægum algengum sjúk­dómum. Jurtalyf eru við­ur­kennd lyf sem fram­leidd eru úr virkum nátt­úru­efnum sam­kvæmt sömu gæða­stöðlum og hefð­bundin lyf. Stefnt er að skrán­ingu og sölu lyfj­anna á Evr­ópu­mark­aði en nýleg reglu­gerð Evr­ópu­sam­bands­ins setur auknar kröfur um skrán­ingu og gæða­staðla jurta­lyfja. Reglu­gerðin hefur nú verið inn­leidd á Íslandi.

Herberia var stofnað í árs­byrjun 2013 af þremur lyfja­fræð­ingum með víð­tæka reynslu úr lyfja­geir­anum og nýlega bætt­ist fjórði frum­kvöð­ull­inn í hóp­inn. Kolbrún Hrafn­kels­dóttir lyfja­fræð­ingur er for­stjóri félags­ins en með­stofn­endur hennar eru Sesselja S. Ómars­dóttir pró­fessor í lyfja- og efna­fræði nátt­úru­efna og Nína Björk Ásbjörns­dóttir lyfja­fræð­ingur. Karl Guð­munds­son stýrir sölu- og mark­aðs­málum fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn félags­ins skipa þau Guðbjörg Edda Egg­erts­dóttir for­maður, fyrr­ver­andi for­stjóri Actavis, Hjör­leifur Pálsson og Skúli Valberg Ólafsson.

Sumarið 2013 var Herberia valið til þátt­töku í Startup Reykja­vík við­skipta­hrað­al­inn, sam­starfs­verk­efni Arion banka og Klak Innovit um stuðn­ing við frum­kvöðla­fyr­ir­tæki. Kjarninn fjall­aði meðal ann­ars um félagið í umfjöllun sinni um verk­efni sem farið hafa í gegnum Startup Reykja­vík við­skipta­hrað­al­inn.

https://vimeo.com/97988066

„Markmið Arion banka með Startup Reykja­vík er að styðja við efni­lega frum­kvöðla og hjálpa þeim að þróa og þroska sína við­skipta­hug­mynd með það að mark­miði að laða að nýja fjár­festa. Það er því afar ánægju­legt að sjá að Herberia hefur nú tek­ist að afla fjár­magns frá nýjum fjár­festum til frek­ari upp­bygg­ingar síns rekstrar,“ segir Einar Gunnar Guð­munds­son, for­svars­maður frum­kvöðla­mála hjá Arion bank.

Félagið hefur einnig notið styrkja frá Lands­bank­anum, Atvinnu­málum kvenna og Lyfja­fræð­inga­fé­lagi Íslands.

„Fáar greinar skal­ast betur en þær sem byggja á hug­viti og því ætti að vera aug­ljóst fyrir litla en vel mennt­aða þjóð að leggja höf­uð­á­herslu á fjár­fest­ingu í þekk­ing­ar­greinum. Við munum ganga strax í að afla fyr­ir­tæk­inu frek­ari fjár­mögn­unar og bindum vonir við að nýir fag­fjár­festa­sjóðir í nýsköpun kom­ist á lagg­irnar hér á landi sem fyrst,“ segir Skúli Valberg í frétta­til­kynn­ingu.

Viðbót klukkan 17:38: Skúli Valberg Ólafsson segir í umfjöllun um þessa frétt, á Facebook að Herberia sé opið fyrir frek­ari fjár­mögnun, og ætli sér að ná í frekara fjár­magn til vaxtar. Fyr­ir­tækið hefur fengið 50 millj­ónir króna með breyt­an­legu skulda­bréfi. Sælt veri fólkið. Svörin eru auð­vitað til staðar ef spurt er; hér er um frum­fjár­fest­ingu uppá 50 mkr að ræða, hún er gerð með breyt­an­legu skulda­bréfi og því er ekki lagt mat á verð­mæti félags­ins að svo stöddu. Ferlið var upp­byggi­legt og við gáfum okkur öll góðan tíma í að und­ir­búa og stilla þessu upp. Við erum opin fyrir allt að 50 mkr. til við­bótar á sömu for­sendum áður en haldið er í "Series A - round" t.d. með fag­fjár­festum. Ég held að það sé alveg óhætt að óska okkur öllum sem sinnum sprota­fyr­ir­tækjum til ham­ingju á þessu stigi, ég vona að þetta sé ekki síður hvatn­ing fyrir aðra engla að halda ótrauðir á vit nýrra ævin­týra. Svo er bara að skila góðum árangri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár