Airbnb gisting er dýrari í Reykjavík en í Barcelona, París og Berlín

Samkvæmt lista ferða­þjón­ustu­vef­síð­unnar GoEuro, situr Reykja­vík í 38. sæti yfir verð fyrir Airbnb gist­ingu í útvöldum borgum víðs vegar um heim­inn. Í Reykja­vík kostar nóttin í Airbnb gist­ingu að jafn­aði 103 evrur, eða tæp­lega 15.900 krónur, en við gerð list­ans safn­aði GoEuro saman verð­upp­lýs­ingum frá vef­síðu Airbnb fyrir yfir fjöru­tíu þús­und gisti­staði í 150 löndum. Við útreikn­ing­anna var stuðst við verð fyrir 2 - 4 ein­stak­linga, bæði innan og utan háanna­tíma, ann­ars vegar helg­ina 26. til 29 des­em­ber og virku dag­ana 6. til 9. októ­ber.

Samkvæmt list­anum er dýrasta Airbnb gist­ingin í Boston, en þar kostar nóttin 220 evrur að með­al­tali, eða hátt í 34.000 krónur. Í Tirana, höf­uð­borg Albaníu, er hins vegar ódýr­ast að kaupa sér Airbnb gist­ingu, en þar kostar nóttin 24 evrur að jafn­aði, eða tæpar 3.700 krónur. Önnur dýrasta borgin hvað varðar Airbnb gist­ingu er Cancún í Mexíkó (198 evrur), og í þriðja sæt­inu situr New York borg (185 evrur).

Á meðal borga, þar sem er ódýr­ara að kaupa Airbnb gist­ingu en í Reykja­vík má nefna París (70 evrur), Berlín (80 evrur), Ósló (83 evrur), Madríd (84 evrur), Mílan (93 evrur), Kaup­manna­höfn (95 evrur), Hong Kong (99 evrur) og Barcelona (99 evrur).

GoEuro reikn­aði sömu­leiðis út með­al­tal fyrir hverslags gist­ingu í áður­nefndum 150 borgum víðs vegar um heim­inn. Þá var reiknað út sam­eig­in­legt með­al­tals­verð fyrir gist­ingu á hót­elum, gisti­heim­ilum, far­fugla­heim­ilum og Airbnb. Þar situr Reykja­vík í 51. sæti á list­anum, með með­al­verð upp á 85 banda­ríkja­dali, eða sem sam­svarar ríf­lega 10.600 krónum. Á þeim lista trónir New York borg á toppnum með með­al­tals­verð fyrir hverslags gist­ingu upp á 246 banda­ríkja­dali, eða tæp­lega 31.000 íslenskar krónur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár