Guðlaugur Þór vill afsökunarbeiðni frá fréttastofu RÚV

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og vara­for­maður fjár­laga­nefndar Alþingis, segir frétta­stofu Rík­is­út­varps­ins hafa sakað sig um rang­færslur og blekk­ingar varð­andi fjár­mál Rík­is­út­varps­ins. Hann vill að frétta­stofan leið­rétti frétt um hann með áber­andi hætti. Þetta kemur fram í aðsendri grein Guðlaugs Þórs í Morg­un­blað­inu í dag.

Guð­laugur Þór segir að frétta­stofan hafi, í frétt sem fór í loftið síð­ast­lið­inn föstu­dag, sagt: „Vegna orða Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks, um að frétta­stofa Rík­is­út­varps­ins hafi rang­lega full­yrt að útvarps­gjaldið hafi aldrei runnið óskert til stofn­un­ar­innar og talna sem hann hefur nefnt í því sam­bandi er rétt að minna á að inn­heimta útvarps­gjalds hófst í árs­byrjun 2009. Fram að því var afnota­gjald inn­heimt. Útvarps­gjaldið hefur aldrei runnið óskert til Rík­is­út­varps­ins.“

Þing­mað­ur­inn hafnar þessu og segir að kapp virð­ist hafa borið frétta­stof­una ofur­liði í þessu til­felli og að þröngir sér­hags­munir hafi ráðið för í frétt­flutn­ingi í stað stað­reynda. „Það er alvar­legt þegar frétta­stofa Rík­is­út­varps­ins - sem starfar í skjóli sér­stakra laga og á kostnað skatt­greið­enda - skuli saka þing­mann um blekk­ingar og jafn­vel beinar rang­færslur. Ætla má að sér­stak­lega sé vandað til verka á rit­stjórnum fjöl­mið­ils sem fer fram með slíkar full­yrð­ingar.“

Hann segir fleiri hafa lagst á árar með frétta­stof­unni við að halda þessu fram, jafnt í þing­sal sem í fjöl­miðlum, og að þar fari stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn í Sam­fylk­ingu og Vinstri grænum fremstir í flokki.

Rifjar upp bréf Steingríms og Katrínar


Guð­laugur Þór rifjar loks upp bréf sem Stein­grímur J. Sig­fús­son og Katrín Jak­obs­dóttir, sem þá voru bæði ráð­herrar, rit­uðu til stjórnar Rík­is­út­varps­ins 4. febr­úar 2011 vegna árskýrslu Rík­is­út­varps­ins ohf. Fyrir fjár­laga­árið 2009-2010. Í grein Guðlaugs Þórs segir að „þar gagn­rýndi stjórn hins opin­bera hluta­fé­lags að fjár­veit­ingar Alþingis til stofn­un­ar­innar fylgi ekki heimtum af útvarps­gjaldi. Er því haldið fram að með því sé rekstr­ar­formið afskræmt og sé „til þess fallið að skerða fjár­hags­legt og rit­stjórn­ar­legt sjálf­stæði stofn­un­ar­innar gagn­vart ríkj­andi stjórn­völdum“.

Þessum full­yrð­ingum mót­mæla ráð­herr­arnir einum rómi og það harka­lega enda ekki í „sam­ræmi við stað­reyndir mála“. Vakin er athygli á því að í árs­byrjun 2009 hafi verið „tek­inn upp almennur skattur, útvarps­gjald“ í stað afnota­gjalds og síðan segir:

„Skatt­ur­inn er ekki mark­aður RÚV eins og afnota­gjaldið var enda ann­ars eðlis. Var m.a. horft til þess að þessi nýi tekju­stofn væri óviss og sveiflu­kenndur, sér­stak­lega í ljósi aðstæðna eftir efna­hags­hrunið þar sem mikil óvissa var um hversu margir ein­stak­lingar og lög­að­ilar yrðu tekju­skatts­skyldir og myndu þar með greiða útvarps­gjaldið.“

Í bréf­inu gagn­rýna ráð­herrar Vinstri grænna Rík­is­út­varpið fyrir að hafa ekki staðið við gerða samn­inga auk þess sem tölu­legar stað­reyndir um fjár­hags­lega aðstoð rík­is­sjóðs á árunum 2006 til 2009 eru dregnar fram. Þá segir orð­rétt:

„Á sama tíma hefur komið í ljós að árin 2009 og 2010 voru inn­heimtar tekjur af útvarps­gjaldi 160 m.kr. lægri en fram­lag rík­is­ins til RÚV voru, eða 6.573 m.kr. á móti 6.733 m.kr. Ef tekin eru með þau útgjöld sem hlut­ust af því þegar rík­is­sjóður lagði nýtt eigið fé inn í RÚV á árinu 2009 eru útgjöld rík­is­sjóðs 723 m.kr. umfram inn­heimtar tekjur af útvarps­gjaldi.““

Í nið­ur­lagi grein­ar­innar segir Guð­laugur Þór: „ Nú er bara að bíða og vona að frétta­stofa Rík­is­út­varps­ins leið­rétti frétt sína síð­ast­lið­inn föstu­dag með áber­andi hætti. Ábyrgir og metn­að­ar­fullir fjöl­miðlar hafa einnig beðist vel­virð­ingar af minna til­efni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár