Reykjanesbær neitar ATP um styrk - framtíð hátíðarinnar í óvissu

Bæjarráð Reykja­nes­bæjar synj­aði á dög­unum tón­list­ar­há­tíð­inni All Tomorrow Parties (ATP) um fjár­hags­styrk vegna hátíð­ar­innar, sem haldin hefur verið und­an­farin tvö sumur að Ásbrú á Mið­nes­heiði. Tón­leika­hald­arar ótt­ast að hátíðin eigi sér ekki fram­tíð til lang­frama án fjár­hags­styrkja frá bæj­ar­fé­lag­inu og ríki.

Í bókun bæj­ar­ráðs­ins vegna styrk­beiðnar tón­leika­hald­ara segir í fund­ar­gerð: „Bæjarráð telur jákvætt að menn­ing­ar­starf­semi á borði ATP hátíð­ar­innar haldi áfram og vill leita leiða til að svo megi verða áfram. Bæjarráð getur hins vegar ekki orðið við beiðni um beint fjár­fram­lag úr bæj­ar­sjóði en styður að hátíðin verði áfram styrkt í gegnum sam­eig­in­lega sjóði á svæð­inu eins og und­an­farin ár.“

Miðasala undir væntingum


Kjarninn hefur undir höndum erindi for­svars­manns ATP til bæj­ar­ráðs Reykja­nes­bæjar þar sem óskað er eftir fjár­hags­styrk til handa verk­efn­inu. Tón­list­ar­há­tíðin ATP Iceland var fyrst haldin hér á landi í fyrra, og svo aftur síð­asta sumar við góðan orðstír. Í erind­inu kemur fram að gestir hátíð­ar­innar árið 2013 hafi verið um 2000 tals­ins, þar af hafi um þrettán hund­ruð þeirra keypt sér miða að hátíð­inni, og þeirra á meðal hafi verið um 300 erlendir gestir. Í ár hafi gesta­fjöld­inn svo tvö­fald­ast þegar um 4000 manns sóttu hátíð­ina, en þar af voru um 3300 seldir miðar og um 2000 þeirra til erlendra gesta.

[quote font="0" align="right"]Upp er komin erfið staða þar sem margir af birgjum hátíð­ar­innar hafa ekki fengið gert upp við sig og gerir það hátíð­inni erfitt fyrir að halda áfram. [/quote]

Í áður­nefndu erindi segir að þrátt fyrir að hátíð­irnar hafi heppn­ast eins og best verði á kosið, standi hún ekki vel fjár­hags­lega. Heild­ar­kostn­aður hennar sé vel yfir 100 millj­ónum króna, og á hvor­ugri hátíð­inni hafi miða­sala staðið undir vænt­ingum. Samkvæmt erind­inu er áætlað heild­ar­tap af síð­ast­liðnum tveimur hátíðum 37 til 40 millj­ónir króna. Þá segir orð­rétt í erind­inu: „Upp er komin erfið staða þar sem margir af birgjum hátíð­ar­innar hafa ekki fengið gert upp við sig og gerir það hátíð­inni erfitt fyrir að halda áfram. Ég, und­ir­rit­aður, hef frá því að verk­efnið hófst skuld­sett sjálfan mig og fjöl­skyldu með fulla trú á verk­efn­inu sem ég taldi að myndi standa undir sér og auka hróður heima­bæj­ar­ins. Auk þess hef ég notið aðstoðar frá ætt­ingjum, sam­starfs­að­ilum og þá hafa flestir birgjarnir sýnt mér og verk­efn­inu ómælda þol­in­mæði - sem ég er þó hræddur um að sé nú á þrotum.“

Undir erindirð skrifar Tomas Young, fram­kvæmda­stjóri ATP Iceland, sem jafn­framt er fram­kvæmda­stjóri Hljóma­hall­ar­innar í Reykja­nesbæ. Hann vildi ekki tjá sig um málið við Kjarnann, þegar eftir því var leitað, vegna starfa sinna fyrir Reykja­nesbæ. Hann sagði þó, að synjun bæj­ar­fé­lags­ins á fjár­styrks­beiðn­inni breyti engu um áform ATP fyrir tón­list­ar­há­tíð­ina sem fyr­ir­huguð sé á næsta ári.

[caption id="attachment_13919" align="aligncenter" width="640"] Frá tón­leikum Interpol á síð­ustu tón­list­ar­há­tíð ATP.[/caption]

Margvísleg mælanleg og ómælanleg áhrif fyrir bæjarfélagið


Þá eru rakin mæl­an­leg og ómæl­an­leg áhrif tón­list­ar­há­tíða á borð við ATP í erind­inu. Ómæl­an­leg áhrif séu til að mynda hvernig tón­list­ar­há­tíðir geta aukið hróður ákveð­inna svæða, eins og í til­vikum tón­list­ar­há­tíð­anna Aldrei fór ég Suður á Ísafirði, Bræðsl­unnar á Borg­ar­firði Eystra og Hró­arskeldu­há­tíð­ar­innar í Hró­arskeldu. Þá eru einni nefnd hag­ræn áhrif tón­list­ar­há­tíða út frá tekjum sem sam­fé­lög hafa vegna þeirra.

[quote font="0" align="right"]Ef þessar nið­ur­stöður eru heim­færðar á gesta­fjölda ATP Iceland og lengd hátíð­ar­innar má gera ráð fyrir að heild­ar­velta erlendra gesta sé um 240 m.kr. á svæð­inu og þá er ótalin fjár­hags­leg inn­spýt­ing frá íslenskum gestum.[/quote]

Í erind­inu er vísað til rann­sóknar Útflutn­ings­skrif­stofu íslenskrar tón­listar (ÚTÓN) á hag­rænum áhrifum erlendra tón­leika­gesta vegna Iceland Airwaves tón­list­ar­há­tíð­ar­innar. Þar kemur fram að þegar pen­inga­eyðsla erlendra ferða­manna er skoðuð komi í ljós að heild­ar­út­gjöld gest­anna í Reykja­vík nemi tæp­lega 30 þús­und krónum á dag.

„Ef þessar nið­ur­stöður eru heim­færðar á gesta­fjölda ATP Iceland og lengd hátíð­ar­innar má gera ráð fyrir að heild­ar­velta erlendra gesta sé um 240 m.kr. á svæð­inu og þá er ótalin fjár­hags­leg inn­spýt­ing frá íslenskum gestum. Afleidd áhrif tón­list­ar­há­tíða eru einnig mikil og fjöl­margir aðilar njóta góðs af til­vist hátíð­ar­innar. Gisti­að­ilar (gist­ing á svæð­inu var löngu upp­seld þegar að hátíð­inni kom), leigu­bíl­stjórar, mat­reiðslu­menn, rútu­fyr­ir­tæki, söfn, veit­inga­staðir, sund­laugar, og þannig mætti lengi telja, fá aukin við­skipti á meðan hátíð­inni stendur.“ Að því er fram kemur í áður­nefndu erindi.

ATP á sér líklega ekki framtíð án fjárhagsstyrkja


Í erind­inu er ekki farið fram á eina til­tekna styrk­fjár­hæð, en farið er fram á að bæj­ar­ráð Reykja­nes­bæjar styrki ATP Iceland fjár­hags­lega, til að halda lífi í tón­list­ar­há­tíð sem auki hróður bæj­ar­fé­lags­ins og stuðli að fjár­hags­legri inn­spýt­ingu fyrir svæðið, eins og það er orðað í erindi for­svars­manns ATO. Máli sínu til stuðn­ings benda for­svars­menn ATP á að hátíðir á borð við tón­list­ar­há­tíð­ina njóti styrkja á sínum svæðum bæði frá við­kom­andi sveit­ar­fé­lögum og ríki. Í því sam­bandi er bent á að Iceland Airwaves fái tíu millj­ónir króna árlega frá Reykja­vík­ur­borg og fimm millj­ónir frá mennta­mála­ráðu­neyt­inu, Lista­há­tíð fái árlega 29 millj­ónir frá borg­inni og um 30 millj­ónir króna frá ríki, og tón­list­ar­há­tíðin Aldrei fór ég suður sé styrkt af Ísa­fjarð­arbæ og fleiri sjóðum. Þá eru tón­list­ar­há­tíð­irnar By:Larm í Noregi og Hró­arskeldu­há­tíðin einnig nefndar, sem fái tugi millj­óna króna í styrki árlega frá sínum sveitaré­lögum og úr rík­is­sjóði.

[quote font="0" align="right"]Ég get nú með sanni sagt eftir tvær til­raunir að verk­efnið er erf­ið­ara og þyngra en bæði mig og ATP grun­aði og að án fjár­hags­legar aðstoðar er mjög lík­legt að verk­efnið falli um sjálft sig.[/quote]

Í nið­ur­lagi erind­is­ins segir svo orð­rétt: „Til að hátíðin geti haldið áfram þarf ATP Iceland á fjár­hags­legri aðstoð bæj­ar­fé­lags­ins að halda líkt og aðrar sam­bæri­legar hátíðir. Þegar lagt var af stað í verk­efnið var talið að þess væri jafn­vel ekki þörf. Ég get nú með sanni sagt eftir tvær til­raunir að verk­efnið er erf­ið­ara og þyngra en bæði mig og ATP grun­aði og að án fjár­hags­legar aðstoðar er mjög lík­legt að verk­efnið falli um sjálft sig.“

Þess ber að geta að Reykja­nes­bær hefur stutt við hátíð­ina með marg­vís­legum hætti til þessa, án þess að til beinna fjár­fram­laga hafi komið, svo sem með því að veita ýmsa þjón­ustu á tón­leika­svæð­inu við Ásbrú og ann­ast hreins­un­ar­starf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár