Bankastjóri Landsbankans svaraði fyrir Borgunarmálið

Steinþór Pálsson, banka­stjóri Lands­bank­ans, kom fyrir efna­hags- og við­skipta­nefnd Alþingis í morgun og svar­aði fyr­ir­spurn þing­manna um Borg­un­ar­málið svo­kall­aða, það er sölu Lands­bank­ans á 31,2 pró­sent hlut í greiðslu­korta­fyr­ir­tæk­inu Borgun.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans kom fátt nýtt fram í máli Stein­þórs og varði hann þá ákvörðun bank­ans að selja hlut­inn ekki í opnu sölu­ferli líkt og hann hefur gert áður. Vísaði hann þar til þess að Lands­bank­inn hafi verið í óvirkur eig­andi stórs hlutar í Borgun, vegna sáttar sem bank­inn gerði við Sam­keppn­is­eft­ir­litið. Þá var hann spurður út í verðið á hlutnum, tæpa 2,2 millj­arðar króna, en eins og Kjarninn greindi frá í gær þykir það í lægra lagi þegar horft er til algengra mæli­kvarða við mat á virði fyr­ir­tækja.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans varði Steinþór verð­matið sem lá til grund­vallar í við­skipt­unum. Eftir ítar­lega skoðun á virði hlut­ar­ins hefði þetta verið nið­ur­staðan, og sam­an­burður á virði þessa hlutar við virði ann­arra fyr­ir­tækja væri alltaf mats­kenndur og að því leyti ómark­tækur.

Eins og Kjarninn hefur greint frá þá eru ekki öll kurl komin til grafar enn hvað þessi mál varðar. Sam­keppn­is­eft­ir­litið er enn að rann­saka meint brot bank­anna á sam­keppn­is­lögum í gegnum greiðslu­korta­fyr­ir­tækin, og svar­aði Páll Gunnar Pálsson, for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, því til að hann gæti ekki tjáð sig um rann­sókn­ina á þessum tíma­punkti, þegar Kjarninn leit­aði við­bragða hjá honum. Páll Gunnar hefur ann­ars stað­fest að Sam­keppn­is­eft­ir­litið hafi þrýst á um breyt­ingar á eign­ar­haldi greiðslu­korta­fyr­ir­tækj­anna, án þess þó að það hafi sett upp kröfur um hvernig yrði staðið að sölu á hlutum í fyr­ir­tækj­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár