Sakar Jón Gunnarsson um óeðlileg afskipti af skuldamáli bakhjarls

Þór Jónsson, upp­lýs­inga­full­trúi fjár­mögn­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Lýsingar, gagn­rýnir Jón Gunn­ars­son, þing­mann Sjálf­stæð­is­flokks og for­mann atvinnu­vega­nefndar Alþingis, harð­lega fyrir afskipti af skulda­máli verk­taka­fyr­ir­tæk­is­ins Fjarð­ar­grjóts í aðsendri grein á Press­unni í dag.

Eins og Kjarninn greindi fyrstur frá á föstu­dag, hafði Jón Gunn­ars­son ítrekuð afskipti af skulda­máli Fjarð­ar­grjóts gagn­vart Lýsingu, að því er fram kom í ræðu þing­manns­ins á fimmtu­dag­inn. Verk­taka­fyr­ir­tækið styrkti fram­boð þing­manns­ins í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi í fyrra um fimm­tíu þús­und krónur.

Í júlí stað­festi Hæsti­réttur Íslands úrskurð Hér­aðs­dóms Reykja­ness, þar sem Lýsingu var heim­ilað að fá ell­efu vinnu­vélar og einn fólks­bíl, auk ann­arra tækja, tekin með beinni aðfar­ar­að­gerð úr vörslu Fjarð­ar­grjóts. Fyr­ir­tækin gerðu með sér kaup­leigu­samn­inga, með ólög­mætri geng­is­trygg­ingu, vegna tækj­anna, sem verk­taka­fyr­ir­tækið efndi ekki sökum deilna um end­ur­út­reikn­inga á samn­ing­unum. Lýsing rifti samn­ing­unum í byrjun októ­ber 2012, en þá námu van­skil Fjarð­ar­grjóts gagn­vart Lýsingu tæpum 65 millj­ónum króna.

Segir Lýsingu hafa unnið samkvæmt samningsbundnu mati


Í ræðu sinni gerði þing­mað­ur­inn Jón Gunn­ars­son athuga­semd við mat Lýsingar á verð­mæti tækj­anna. Lýsing hefði metið tækin á 46 millj­ónir króna, sem svo hafi verið seld fyrir 73 millj­ónir á nauð­ung­ar­upp­boði. Jón sagði mark­aðs­verð­mæti þeirra um 120 millj­ónir króna sam­kvæmt mati „lög­giltra sala slíkra tækja.“ Þá sagði Jón í ræðu sinni: „Þetta er auð­vitað mjög slá­andi dæmi. […] Ég gerði ítrek­aðar til­raunir í síð­ustu viku og síð­ustu tíu daga, til þess að ná sam­bandi við for­ystu­menn Lýsingar, til þess að fá á þessu skýr­ingar, og satt best að segja fékk ég engin svör við því, þrátt fyrir að hafa talað þar við fleiri en einn starfs­mann og lagt inn skila­boð og sent tölvu­pósta til þess að ítreka mál mitt.“

Í áður­nefndri grein skrifar upp­lýs­inga­full­trúi Lýsingar: „Fram hefur komið í fréttum að jarð­vinnslu­fyr­ir­tækið gerð­ist fjár­hags­legur bak­hjarl þing­manns­ins á sama tíma og það lét undir höfuð leggj­ast að greiða af samn­ingum sínum við Lýsingu. Hefur hann ásamt SI (Samtökum iðn­að­ar­ins) dregið í efa heim­ildir Lýsingar til að tak­marka tjón sitt og hamla frek­ari skerð­ingu á stjórn­ar­skrár­vörðum eign­ar­rétti félags­ins með því að meta tækin í sam­ræmi við umsamda upp­gjörs­skil­mála. Er gefið í skyn að Lýsingu hafi borið skylda til að lækka skuldir van­skila­fyr­ir­tæk­is­ins meira en nam mats­verð­inu og vísað í eitt­hvert óskil­greint álit „lög­giltra sala“ því til sönn­unar.“

Þór Jónsson skrifar að á meðal þess sem Lýsing semji um við fyr­ir­tæki á borð við Fjarð­ar­grjót, komi til hugs­an­legrar rift­unar samn­inga, sé að félag­inu sé heim­ilt að láta umboðs­að­ila eða aðra til þess bæra mats­menn meta leigumuni til upp­í­t­öku­verðs að teknu til­liti til 15 pró­senta við­bót­araf­falla auk við­gerð­ar­kostn­aðar og sölu­launa upp á 3 pró­sent. Lýsing hafi neyðst til að höfða mál til að tryggja eignir sínar.

„Jarð­vinnslu­fyr­ir­tækið mót­mælti mati Lýsingar og fór fram á upp­boð á eign­unum. Við því var orðið, með athuga­semdum um ástand eign­anna þegar við átti, og fær jarð­vinnslu­fyr­ir­tækið að njóta sölu­verðs­ins á upp­boð­inu að frá­dregnum útlögðum kostn­aði, enda er það hærra en mats­verðið. Uppboðið var óvenju­lega vel sótt og árang­urs­ríkt, en fyr­ir­tækið hafði sjálft aug­lýst það upp. Upp­boðs­verðið var samt sem áður fjarri því mati sem þing­mað­ur­inn og SI leggja til grund­vallar og sýnir best í hve litlum tengslum við raun­veru­leik­ann það er,“ skrifar upp­lýs­inga­full­trúi Lýsingar.

Sakar þingmanninn um óeðlileg afskipti


Þá gagn­rýnir upp­lýs­inga­full­trúi Lýsingar fram­göngu Jóns Gunn­ars­sonar í mál­inu, að hann hafi notað ræðu­stól Alþingis til að vekja athygli á mál­inu, og að hann sem full­trúi lög­gjafa­valds­ins hafi í hyggju að þrýsta á sjálf­stæða eft­ir­lits­stofnun fram­kvæmda­valds­ins til að beita sér í mál­inu. Í þessu sam­bandi er Þór Jónsson að vísa til ummæla Jóns Gunn­ars­sonar í áður­nefndri ræðu þar sem hann sagð­ist ætla að vísa mál­inu til Fjár­mála­eft­ir­lits­ins.

[caption id="attachment_13899" align="aligncenter" width="470"] Skjáskot tekið af Facebook síðu Jóns Gunn­ars­sonar.[/caption]

„Í ræðu sinni á Alþingi kvart­aði þing­mað­ur­inn m.a. undan því að hafa ekki fengið upp­lýs­ingar hjá Lýsingu um málið. Hlýtur hann þó að skilja að fjár­mála­fyr­ir­tæki getur ekki gefið þing­mönnum upp­lýs­ingar um ein­staka við­skipta­vini, þótt þeir séu póli­tískir stuðn­ings­menn þeirra, eða rætt við þá umboðs­laust um með­ferð máls­ins. Auk þess er ekki rétt hjá þing­mann­inum að Lýsing hafi ekki svarað boðum hans. Fram­kvæmda­stjóri hjá Lýsingu reyndi að ná í hann í síma og sendi honum tölvu­póst eftir að skrif­stofa Alþingis hringdi og bað um að haft yrði sam­band við hann. Starfs­maður þings­ins skil­aði því þá að þing­mað­ur­inn vildi ekki tala við neinn nema for­stjór­ann,“ skrifar Þór Jónsson í áður­nefndri grein á Press­unni.

„Nú mætti ætla að umboðs­menn almenn­ings og hags­muna­fé­lög á svið­inu brygð­ust ókvæða við skekktri sam­keppn­is­stöðu vegna van­skila af þessu tagi, sem jafn­framt grafa undan mögu­leikum fjöld­ans á hag­stæðri fjár­mögnun. En það er öðru nær. Heild­ar­hags­munir eru látnir víkja fyrir skamm­tíma sér­hags­munum.“

Þá gagn­rýnir upp­lýs­inga­full­trúi Lýsingar sömu­leiðis Samtök iðn­að­ar­ins fyrir yfir­lýs­ingu sam­tak­anna sem birt­ist á heima­síðu þeirra á fimmtu­dag­inn, þar sem fram kemur gagn­rýni á vinnu­brögð Lýsingar.

„SI (Samtök iðn­að­ar­ins) gáfu Lýsingu heldur ekki langan frest til að svara óform­legri fyr­ir­spurn frá lög­fræð­ingi sam­tak­anna um afstöðu til for­dæm­is­gildis nýlegs Hæsta­rétt­ar­dóms áður en gefin var út frétta­til­kynn­ing með ásök­unum á hendur félag­inu. Er þó full ástæða til að vanda svör til þess­ara sam­taka, sem höfðu mótað sér skoðun á dóm­inum og gefið hana út opin­ber­lega sama dag og hann var kveð­inn upp, þrátt fyrir að hafa hlaupið illi­lega á sig áður, þegar mál­efni Lýsingar voru til umræðu, og til­kynnt félags­mönnum sínum um for­dæmi dóms, sem Hæsti­réttur stað­festi síðar að væri rangur. Samtökin hafa ekki séð ástæðu til að skýra frá því á heima­síðu sinni að þau höfðu á röngu að standa, hvatn­ingin til félags­manna þeirra um að hætta að greiða af lög­mætum samn­ingum hafi ekki verið á rökum reist og aðeins valdið hlut­að­eig­andi auknum kostn­aði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár