Bibbi bloggar úr Evróputúr Skálmaldar: Ludwigsburg

Skálmöld er nú á tæp­lega 7 vikna túr um Evrópu. Dagarnir eru afskap­lega við­burða­ríkir og aðstæður oft afskap­lega skemmti­legar. Snæbjörn, bassa­leik­ari og texta­höf­undur sveit­ar­innar, heldur úti dag­legu bloggi á vef Kjarnans þar sem hann lýsir hinu goð­sagna­kennda rokk­ara­lífi. Táfýla, blóð, sviti, tár og auð­vitað rokk & ról beint í æð.

Þetta var meist­ara­legur dagur, alveg meist­ara­legur. Ég vakn­aði örugg­lega tvö, en það gæti hafa verið fjögur. Nei það var tvö. Ég var síð­astur á fætur, rétt eftir Þrába og þá voru allir komnir í skóna. Björn heitir maður og skrifar fyrir hið virta tíma­rit Metal Hammer þeirra Þjóð­verja. Hann hefur fylgt túrnum eftir í þrjá daga og ætlar að skilja eftir sig þriggja síðna grein um allt saman. Sá er afskap­lega ágætur og strák­arnir höfðu haft við hann alls­konar sam­skipti síð­ustu daga, Jón Geir fór fram­ar­lega í að hella hann fullan í gær og/eða fyrra­dag, hann hafði komið til Íslands nokkrum sinnum og ég veit ekki hvað og hvað. Hann er sjálfur frá Stutt­gart sem er ekki nema örfáa tug­kíló­metra frá hvar við erum nú og hafði boð­ist til að sýna okkur Ludwigsburg. Og það þáðum við í dag. Þetta var svo sem ekki flókið eða inni­halds­mikið en dag­ur­inn var afskap­lega góður. Hann fór með okkur á mjög svo þýskan jóla­markað hvar ég fékk mér tvær teg­undir jóla­víns í morg­un­mat. Við röltum svo um og end­uðum á litlum brugg­bar sem sör­ver­aði bæði bjór og gúmmelaði. Og svo héldum við upp á venjú í síð­búið sánd­tékk.

Við höfðum aðeins 40 mín­útur sem var afleiða þess að hávaða má ekki hafa hér fyrr en eftir ákveð­inn tíma á dag­inn á þessum til­tekna stað. Við leystum það verk­efni á raun­tíma og það eina sem tafði okkur var ein­hver örlítil vöm tækni­manna stað­ar­ins sem ann­ars voru nú alveg með á nót­unum. Við fengum svo svo­lít­inn mat sem bragð­að­ist ágæt­lega og héldum okkar strik. Eitt við­tal tókum við milli tékks og giggs við mann sem tal­aði grun­sam­lega góða íslensku. Sá heitir Gaston Ragnar, get­inn af íslenskri móður og lúx­en­búrgskum föður. Þegar ég segi grun­sam­lega meina ég full­komna því ég hefði alveg getað tekið hann fyrir hrein­rækt­aðan Reyk­vík­ing, en hann hefur þó aldrei búið á Íslandi. Sérlega skemmti­legur maður sem við eyddum tals­verðum tíma með í kvöld. Viðtalið var skemmti­legt, útvarps­við­tal fyrir stöð sem ég er auð­vitað búinn að gleyma hvað heitir. Og svo skutl­uðum við okkur í gall­ann.

Giggið var frá­bært. Auðvitað svo­lítið þýskt og þess­vegna ekki endi­lega allir hopp­andi um gólfin. Ég átti smá sam­tal eftir allt saman við áður­nefndan Björn, hvers vegna þýskar­inn hefði sig ekki meira í frammi á svona tón­leikum. Björn vill meina að þau séu spillt. Hér ger­ist svo margt, í hverri ein­ustu borg eru tón­leikar á öllum götu­hornum hvert ein­asta kvöld og þeim finnst þau aldrei vera að missa af neinu. Og attitúdið er: „Skemmtu mér hel­vítið þitt, ég gæti alveg verið ann­ars staðar akkúrat núna!“ Og það gerðum við í kvöld.

Þetta var senni­lega eitt best spil­aða gigg sem við höfum átt á túrnum. Við vorum bara on it. Allt steinlá og við fun­heitir á svið­inu. Áhorf­endur voru skít­kaldir í upp­hafi, en það þurfum við jú að díla við alla daga og fylgir því að vera fyrsta band á svið. (Í febr­úar förum við svo aftur á túr með Elu­veitie, þá sem annað band af þremur og getum ekki skýlt okkur með þess­ari afsökun, en þetta er nú samt svona.) Fyrsta lag kvölds­ins er og verður allt stíft, kalt og erfitt. Eftir það höfum við 45 mín­útur af fæt­ing til að ná öllum með okkur. Og það gerðum við með bravúr í dag. Þetta end­aði frá­bær­lega og við vorum glaðir, sveittir og full­nægðir eftir allt saman, og áhorf­endur líka. Skálmöld upp á sitt besta við fremur erf­iðar aðstæður. Ég held að ég eigi eftir að muna þetta gigg.

[caption id="attachment_13882" align="alignnone" width="4896"] Flex, eða Flexi. Þetta er hann. Þið þekkið hann orðið úr pistl­unum. Hann er mað­ur­inn sem fær þetta til að hljóma vel.[/caption]

Og svo duttum við íða. Björn fór mik­inn og er afskap­lega hrif­inn af Skálmöld. Hann er þrjá­tíuog­tveggja ára gam­all, þekkir sitt rokk og hefur gaman af því að vera til. Ég átt­aði mig ekki á því fyrr en í dag en hann var mað­ur­inn sem sendi mér spurn­ingar fyrir við­tal sem birt­ist í áður nefndu tíma­riti Metal Hammer. Það við­tal er mér eft­ir­minni­legt því það var mjög skemmti­legt og inni­halds­ríkt, spurn­ingar frá manni sem hafði greini­lega kynnt sér málin og hafði skoðun. Það rím­aði svo aftur við per­sónu­leik­ann. Hann var vissu­lega skemmi­legur túr­gæd í dag en ekki síður góður drykkju­fé­lagi í kvöld. Hann hafði uppi háleit plön um að ná síð­asta strætó heim, en hann er frá Stutt­gart sem er í allra næsta nágrenni. Við klúðruðum því vilj­andi fyrir honum með íslensku áfengi og skemmti­legum félags­skap. Við Halli kvöddum hann úti á plani fyrir stuttu síðan ásamt Gaston Ragnari sem ætl­aði á fá far með leigu­bílnum. Leigu­bílnum sem Metal Hammer borgar. Gott kvöld og góður dagur með miklum meist­urum.

Einn enn langar mig að nefna. Hér mætti maður að nafni Ron Merz. Sá er einn af ótrú­lega mörgum Barna Loka sem mætir á gigg á þessum túr. Börn Loka er aðdá­enda­klúbbur Skálmaldar sem rek­inn er heiman frá, félags­skapur sem við höfum lítil afskipti af en hefur verið rek­inn með stór­kost­leg­heitum af mjög góðu fólki frá upp­hafi. Þar eru í meiri­hluta Íslend­ingar en þónokkuð margir útlend­ingar líka. Ron þessi hefur verið sýni­legur í klúbbnum á lok­uðu Facebook-svæði í all­nokkurn tíma og við höfum raunar hitt hann áður. Ég man bara ekki alveg hvar. Í þetta skipti mætti hann með gjafir því hann heldur úti hljóm­sveit sem hann nefni Bloodred og þarna gaf hann okkur tveggja laga demó­plötu hverjum. Við áttum gott spjall og þar fer drengur góður. Ég ætla að tékka á plöt­unni hans á eftir.

Klukkan er 1.30, helstu sam­ferða­menn dags­ins farnir heim og við allir í rútu. Nei, Baldur er úti að tala í sím­ann. Ég er búinn að heyra tvær tíma­setn­ingar fyrir brott­för, tvö og þrjú. Það gildir einu svo sem. Halli og Þráb eru í koju, Jón Geir er á brók­inni og því von­andi á sömu leið, Flexi og Böbbi spila Manager og Robert er sof­andi. Flexi er að agitera fyrir Kana. Ég er til, svo mikið er víst. Baldur fékk óvæntar gjafir frá Rússunum, eina Jack og eina rauð­vín. Hann seg­ist auk­in­heldur vera klár í að ganga í Halla­stað í Kananum. Hann getur samt ekk­ert held ég. Þetta veltur á Böbba núna, hann er í ein­hverjum væl yfir þreytu. Almennt eru skeytin góð úr her­búðum Skálmaldar og ekki yfir nokkru að kvarta.

Meist­ara­legt dag­ins: Seinni drykk­ur­inn sem við fengum okkur í jóla­þorp­inu hét „Heiβe Oma“. Það útleggst sem „Heit amma“.

Sköll dag­ins: Peberoni er ekki pepp­er­oni. Flexi fékk pitsu „með grænum, litum súrpiprum“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár