Ríflega 200 læknanemar ætla ekki að sækja um stöður kandídata

Rúmlega tvö hund­ruð íslenskir lækna­nemar á 4. til 6. ári hafa skrifað undir yfir­lýs­ingu þess efnis að þeir muni ekki sækja um stöður kandídata eða aðstoð­ar­lækna við heil­brigð­is­stofn­anir lands­ins, fyrr en samn­ingar nást milli ríkis og lækna. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu sem Kjarn­anum barst í morgun frá for­svars­mönnum und­ir­skrifta­söfn­un­ar­innar.

Lækna­nemar við lækna­deild Háskóla Íslands munu afhenda Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, und­ir­skrift­ar­list­ann við fjár­mála­ráðu­neytið klukkan 15:15 í dag. Ráðherra hefur fall­ist á að hitta lækna­nem­ana og veita nafna­list­anum við­töku. Allir læknar og lækna­nemar eru hvattir til að mæta af þessu til­efni, og því má búast við fjölda manns á stað­inn.

Forsaga málsins


Grunnnám í lækn­is­fræði er 6 ár. Að því loknu fara útskrif­aðir læknar á kantídatsári til starfa á ýmsum sviðum hjá heil­brigð­is­stofn­unum lands­ins í eitt ár til að öðl­ast lækn­inga­leyfi hér á landi. Þá vinna margir lækna­nemar á 4. og 5. ári sem aðstoð­ar­læknar á Land­spít­al­anum og öðrum heil­brigð­is­stofn­unum yfir sum­ar­tím­ann og fá þá tíma­bundið lækn­inga­leyfi.

Á aðal­fundi Lækna­fé­lags Íslands, þann 25. sept­em­ber síð­ast­lið­inn, afhentu 6. árs lækna­nemar við lækna­deild Háskóla Íslands Krist­jáni Þór Júl­í­us­syni heil­brigð­is­ráð­herra yfir­lýs­ingu þess efnis að þeir myndu ekki sækja um stöður kandídata eða aðstoð­ar­lækna við heil­brigð­is­stofn­anir lands­ins fyrr en samn­ingar næð­ust milli ríkis og lækna. Alls skrif­uðu 42 lækna­nemar á loka­ári undir yfir­lýs­ing­una. Í kjöl­farið söfn­uð­ust und­ir­skriftir hjá 4. og 5. árs lækna­nemum hér á landi og íslenskum lækna­nemum á 4.-6. ári í Danmörku og Ung­verja­landi. Alls hafa safn­ast 200 und­ir­skriftir sem lækna­nemar afhenda fjár­mála­ráð­herra í dag.

Hvaða áhrif munu aðgerðirnar hafa?


Lækna­kandídatar og lækna­nemar hafa mannað um 75 stöðu­gildi aðstoð­ar­lækna yfir sum­ar­tím­ann á Land­spít­al­anum sein­ustu ár, sem er um 40 pró­sent af öllum stöðu­gildum lækna sem ekki hafa sér­fræði­menntun. Kandídatar og lækna­nemar sinna mik­il­vægu hlut­verki á spít­al­anum og vinna þeir ekki ein­ungis dag­vinnu heldur einnig vakta­vinnu á kvöldin og um helgar. Því er ljóst að þessar aðgerðir munu hafa mikil áhrif á dag­lega starf­semi spít­al­ans ef til þeirra kemur. Að auki hafa um 50 lækna­nemar og kandídatar unnið á heilsu­gæslum og öðrum heil­brigð­is­stofn­unum á sumrin og munu aðgerð­irnar því hafa við­tæk áhrif um allt land.

„Ég vil taka það fram að þessi und­ir­skrift­ar­söfnun fór fram áður en boðað var til verk­falls. Við gerum þetta til að styðja kjara­bar­áttu lækna en líka vegna þess að við treystum okkur ein­fald­lega ekki til að starfa sem læknar eins og staðan er í heil­brigð­is­kerf­inu í dag,“ segir Daði Helgason, tals­maður 6. árs lækna­nema í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Launin eru rót vandans, en fleira kemur til


„Launin eru rót vand­ans og þau skipta okkur auð­vitað miklu máli. En vegna lágra launa og nið­ur­skurðar sein­ustu ár hefur skap­ast ástand þar sem mann­ekla er mikil og álagið á þeim sem eftir eru er gíf­ur­legt. Við þessar aðstæður gefst ekki mik­ill tími til að kenna og leið­beina nemum og þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í starfi og af þessum ástæðum treystum við okkur ekki til að mæta til starfa,“ skrifar Daði Helgason.

„Við vonum auð­vitað að samn­ingar náist og að við getum mætt til starfa næsta sumar, því að við viljum leggja okkar að mörkum til að byggja heil­brigð­is­kerfið upp á nýjan leik, en miðað við hvað verk­fallið hefur staðið yfir lengi og hljóðið í ráða­mönnum er ég ekk­ert alltof bjart­sýnn á fram­haldið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár