Höfðu áhyggjur af rekstrargrundvelli lögreglu á Austurlandi

Sveita­fé­lagið Horna­fjörður var sett undir lög­reglu­um­dæmi Aust­ur­lands vegna þess að sveita­stjórnar- og lög­reglu­menn þar höfðu áhyggjur af því að rekst­ar­grund­völlur lög­regl­unnar þar væri veikur. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þáver­andi dóms­mála­ráð­herra, tók ákvörð­un­ina og til­kynnt var um hana á sama tíma og hann lét af störfum sem dóms­mála­ráð­herra.Með henni færð­ust lög­reglu­mál Horna­fjarðar, og það fjár­magn sem þeim fylgir, yfir í kjör­dæmi Sig­mundar þvert á vilja Horn­firð­inga.

Að sögn Jóhann­esar Þór Skúla­sonar, aðstoð­ar­manns Sig­mundar Davíðs hafði rekstr­ar­grund­völlur lög­regl­unnar á Aust­ur­landi ekki „verið nógu sterkur. Að mati heima­manna skipti það miklu máli að það sam­starf sem hefur verið milli lög­reglu­emb­ætta á Höfn og á Aust­ur­landi sé skoðað nánar og rekstr­ar­for­send­urnar end­ur­metnar“. Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í dag.

Líkt og Kjarninn greindi frá á föstu­dag var það síð­asta verk Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, for­sæt­is­ráð­herra, sem dóms­mála­ráð­herra var að setja nýja reglu­gerð um lög­reglu­um­dæmi lög­reglu­stjóra, þar sem sveit­ar­fé­lagið Horna­fjörður telst nú til umdæmis lög­reglu­stjór­ans á Aust­ur­landi. Með ákvörðun sinni færði þáver­andi dóms­mála­ráð­herra lög­regl­una á Höfn úr Suð­ur­kjör­dæmi yfir í Norð­aust­ur­kjör­dæmi, sem vill svo til að er hans kjör­dæmi.

[quote font="0" align="right"]Lög­reglu­yf­ir­völdum og sveit­ar­stjórn­ar­mönnum barst til­kynn­ing um reglu­gerð­ina í tölvu­pósti klukkan rétt rúm­lega eitt á fimmtu­dag, en þá var nýhaf­inn rík­is­ráðs­fundur á Bessa­stöðum þar sem Ólöf Nordal tók form­lega við sem nýr inn­an­rík­is­ráð­herra[/quote]

Lög­reglu­yf­ir­völdum og sveit­ar­stjórn­ar­mönnum barst til­kynn­ing um reglu­gerð­ina í tölvu­pósti klukkan rétt rúm­lega eitt á fimmtu­dag, en þá var nýhaf­inn rík­is­ráðs­fundur á Bessa­stöðum þar sem Ólöf Nordal tók form­lega við sem nýr inn­an­rík­is­ráð­herra. Samhliða því færð­ust dóms­málin frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu aftur yfir í inn­an­rík­is­ráðu­neytið.

Mikil óánægja með ákvörðunina


Sveit­ar­stjórn­ar­menn á Horna­firði eru æfir vegna reglu­gerð­ar­innar, og Björn Ingi Jónsson, bæj­ar­stjóri á Horn­ar­firði, sendi þing­mönnum og nýskip­uðum dóms­mála­ráð­herra harð­ort bréf vegna máls­ins.Í nið­ur­lagi bréfs­ins, sem Kjarninn hefur undir höndum, segir:„Þess vegna spyr ég HVAÐ ER AÐ GERAST HJÁ YKKUR?! Ég óska eftir því að þið beitið ykkur í því að þessi ákvörðun verði end­ur­skoðuð og að unnið verð áfram í þá átt sem hér hefur verið lýst.“

Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir, for­maður alls­herj­ar­nefndar Alþingis og þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði við fjöl­miðla um helg­ina að það ætti að draga reglu­gerð Sig­mundar til baka. Ólöf Nordal, nýr inn­an­rík­is­ráð­herra, sagði í fréttum Stöðvar 2 um helg­ina að hún ætli að fara yfir málið.

Í frétt Frétta­blaðs­ins í morgun kom fram að ekki hefði náðst í Sigmund Davíð vegna hennar, þar sem hann var staddur erlendis. Sig­mundur Davíð hefur ekki tjáð sig um málið frá því að það komst í hámæli á föstu­dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár