Pæling dagsins: Hægt að umbylta stjórnsýslunni með netinu

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Mikil tæki­færi fel­ast í sífellt meiri áhrifum inter­nets­ins á líf okkar, í gegnum síma og sam­fé­lags­miðla ekki síst. Michael Joseph Gross, blaða­maður, skrif­aði afar áhuga­verða grein um inter­netið í hið metn­að­ar­fulla tíma­rit Vanity Fair fyrir um tveimur og hálfu ári síðan, þar sem þessir merki­legu staf­rænu tímar eru nokkuð vel greindir. Yfir­skriftin, World War 3.0, segir sína sögu um hversu stórt mál þetta er. Ýmsar hættur eru fyrir hendi, sem geta leitt til stórra vanda­mála. En tæki­færin, ekki síst fyrir smærri sam­fé­lög, eru mikil. Staðan á Íslandi, þegar kemur að inter­net­inu, er um það bil svona: Næstum allir eru með gott aðgengi að net­inu og næstum allir með góðar tölvur og síma. Þá er tengi­kerfið í byggð með þeim betri í heim­inum. Stjórn­sýslan íslenska gerir ekki ráð fyrir þessum veru­leika nema að litlu leyti. Full ástæða er til þess að gjör­bylta stjórn­sýsl­unni og laga hana mun hraðar að nýjum veru­leika. Miklir pen­ingar ættu að geta spar­ast með auk­inni sjálf­virkni og aðgengi að upp­lýs­ingum ætti einnig að verða betra, og styrkja ákvörð­una­töku, bæði almenn­ings og stjórn­mála­manna. Reynsla Breta af Gov.Uk verk­efn­inu sýnir að það er vel hægt að nýta netið betur til þess að miðla upp­lýs­ingum til almenn­ings, styrkja opin­bera þjón­ustu og spara pen­ing.

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár