Rómverjar eru klikk

Þorgeir Tryggva­son, Toggi, mun sinna bókaum­fjöllun fyrir Kjarnann fram að jólum en margar bækur eru að koma út þessa dag­ana. Jóla­bóka­flóðið nær svo hámarki í des­em­ber.

Höfundur: Karl Ágúst Úlfsson

Aþena, Ohio

Útgef­andi: Undur og stór­merki

[caption id="attachment_13845" align="alignleft" width="220"] Karl Ágúst Úlfsson.[/caption]

Þegar vera á fynd­inn, alla­vega svona í umtals­verðu magni, er væn­legt að beina grín­inu að tölu­verðu leyti að sjálfu sér. Það er auð­vitað ekk­ert sem Karl Ágúst Úlfsson veit ekki um þá list, svo hann er vissu­lega aðal­skot­spónn­inn í þessum skyndi­myndum, örsögum úr lífi hans og fjöl­skyld­unnar í tveggja ára dvöl í „Hinni sönnu Ameríku“, fjarri solli og menn­ingu stór­borg­anna á strönd­inni.

Eða kannski ekki hann, heldur hann sem ÍSLENDINGURINN, þessi sem hefur gleypt allar klisjur um ágæti eigin lands, menn­ingar og siða hráar og reynir af kappi að inn­leiða þær eða í það allraminnsta óskap­ast yfir þeim frá­vikum sem hann sér á sinni menn­ingu og (ó)menn­ingu umhverf­is­ins. Mataræði, sam­skipta­hættir, hátíð­is­dagar, veður. Allt verður kver­úlant­inum að yrk­is­efni. Hann lætur eins og hann sé að skamm­ast yfir hinum, en svo er það hann sem situr eftir sem vit­leys­ing­ur­inn.

Því þetta fer vita­skuld nán­ast aldrei vel. Þver­haus­inn sem Karl hefur skapað (og er alveg örugg­lega ekki hann sjálfur svo neinu nemi) þarf und­an­tekn­ing­ar­lítið að éta ofan í sig for­dómana og vit­leys­una, stundum án þess að taka eftir því. Þetta er iðul­lega mjög fyndið. Karl er á heima­velli í kver­úlöntum eins og Spaug­stofu­á­horf­endur (les: íslend­ingar) vita, hvort sem það eru bess­ervissar með ald­ar­fjórð­ungs­reynslu af leigu­bíla­akstri, útsmognir prútt­meist­arar eða önugir fönd­ur­kenn­arar. Eða svona landar á þurru landi.

Eftir því sem líður á bók­ina víkur „for­múlan“ sífellt meira fyrir fjöl­breytt­ari nálgun. Gaman er að lesa pistla um mál­efni rit­un­ar­tím­ans (1992–4) – langt síðan þær stöllur Nancy Kerrigan og Tonya Harding hafa komið nálægt með­vit­und manns, svo ekki sé minnst á Roseanne Barr og Tom Arnold og heim­il­isógæfu Clinton-hjón­anna.

Gaman hvað Karli er upp­sigað við mark­aðs- og aug­lýs­inga­skrum­menn­ingu Ameríku, þó lýs­ing­arnar á yfir­geng­leik­anum megi sífellt betur heim­færa á okkur hér. Og langt er síðan ein­hver hefur skrifað jafn æsing­ar­lausa hneykslan á tungu­mál­send­ur­sköp­un­inni sem var að fara í gang þessi árin í nafni „póli­tískrar rétt­hugs­unar“.

Undir lokin tekur það síðan yfir, barnið sem kemur undir og síðar í heim­inn á rit­un­ar­tím­anum. Þannig á það að vera.

Text­arnir eru skrif­aðir sem útvarps­pistlar, sem­sagt ekki ætl­ast til að þeir séu gleyptir í einu lagi, og eftir að hafa gert nákvæm­lega það þá verð ég að segja að ég mæli ekki með þannig neyslu. Til þess eru þeir of keim­líkir í upp­bygg­ingu og inni­haldi. Á hinn bóg­inn er skammta­stærðin þannig að þetta er kjör­gripur til að hafa á nátt­borð­inu og jafn­vel enn afvikn­ari stöðum, þar sem áreynslu­laust og gleði­vekj­andi les­efni á borð við Aþena, Ohio kemur í góðar þarfir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár