Pæling dagsins: Sigur fyrir sjálfstæði Seðlabankans

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Veiting Seðla­banka Íslands, í sam­ráði við efna­hags- og fjár­mála­ráðu­neyti Bjarna Bene­dikts­sonar, á und­an­þágu handa LBI hf. vegna greiðslu til for­gangs­kröfu­hafa upp á 400 millj­arða, er áhuga­verð fyrir margra hluta sakir. Í fyrsta lagi er þetta mik­il­vægt skref í átt að því að rýmka fjár­magns­höftin eða afnema þau með tím­anum. Í öðru lagi er þetta afar mik­il­vægt fyrir Lands­bank­ann og leysir fyr­ir­sjá­an­legan vanda hans, þar sem sam­hliða þessu er verið að lengja í skuld bank­ans við LBI og þar með draga úr áhættu fyrir þjóð­ar­búið. Í þriðja lagi er þetta einnig mik­il­vægt fyrir Seðla­banka Íslands og sjálf­stæði bank­ans undir stjórn Más Guð­munds­sonar. Það er vitað mál að ýmis­legt gekk á bak við tjöldin, og hart var deilt um hvort yfir höfuð ætti að heim­ila greiðslu til for­gangs­kröfu­hafa og lengja í skuld­inni, eins og fram hefur komið í fréttum, ekki síst í ágætum frétta­skýr­ingum Harðar Ægis­sonar í Morg­un­blað­inu. Að lokum tókst Seðla­bank­anum og efna­hags- og fjár­mála­ráðu­neyt­inu að loka mál­inu. Það er ekki endi­lega víst að allir hafi verið sáttir með þetta, t.d. ekki allir Fram­sókn­ar­menn og ýmsir fylgi­sveinar þeirra í fjár­mála­kerf­inu.

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár