Davíð Oddsson: BBC eins og „hvítskúraður ófullur engill" við hlið RÚV

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, hjólar fast í RÚV í Reykja­vík­ur­bréfi sunnu­dags­út­gáfu blaðs­ins og ásakar rík­is­út­varpið um mik­inn póli­tískan halla til vinstri. Þar segir Davíð að breska rík­is­út­varpið BBC hafi lengi vel verið talið „vel hallandi á vinstri kant­inn og sú stofnun hefur sýn þá dygð að neita því aldrei beint. Enda hall­inn þar í raun­inni lít­ill, þótt eftir honum sé tekið. Hann er þannig miklu minni en hall­inn á skakka­turn­inum í Písa. Og BBC er eins og hvít­skúr­aður ófullur eng­ill hjá skakka­turn­inum í Efsta­leiti.“

[quote font="0" align="right"]BBC er eins og hvít­skúr­aður ófullur eng­ill hjá skakka­turn­inum í Efsta­leiti.[/quote]

Reykja­vík­ur­bréfið er allt helgað RÚV, lofun á stöðu þess í for­tíð og last á það sem rík­is­út­varpið er í dag. Davíð segir að þegar Rík­is­út­varpið var hálf­part­inn hluta­fé­laga­vætt fyrir nokkrum árum, og útvarps­ráð, „eina lýð­ræð­is­lega teng­ingin við almenn­ing, hvarf og stjórn var skipuð, var því spáð, að þess háttar stjórn myndi fljót­lega breyt­ast í laun­aðan þrýsti­hóp á rík­is­sjóð fyrir hönd fyr­ir­tæk­is­ins. Sú spá hefur því miður ræst miklu fyrr en nokkur spá­manna hefði sjálfur trúað.

Nú er eng­inn munur orð­inn á stjórn „RÚV“ og holl­vina­sam­tökum Rík­is­út­varps­ins, sem gamlir starfs­menn, ætt­ingjar og vinir standa helst að.“

Sovéskt yfirbragð


Davíð gerir traust til fjöl­miðla einnig að umtals­efni, en MMR birti nýverið árlega könnun sína á því. Hann gerir lítið úr aðgerð­inni sem beitt er við könn­un­ina þar sem hún taki ekki til­lit til fjölda þess sem raun­veru­lega sér þá fjöl­miðla og geti þar af leið­andi myndað sér skoðun á því hvort þeir treysti fjöl­miðl­inum eða ekki. Mest traust væri á Rík­is­út­varp­inu, um 70 pró­sent, þótt það hafi minnkað um sex pró­sent. Það sé líka „eini fjöl­mið­ill­inn, af þeim sem þarna komu til álita, sem býr við sér­stök lög. Í inn­gangi þeirra er tekið fram að stofn­unin starfi í þjóð­ar­þágu! Þetta er vissu­lega dálítið sov­ésk yfir­skrift og ber vott um óör­ugga sam­visku. Svo hátimbruðum yfir­skriftum er ekki splæst á aðrar rík­is­stofn­anir. Land­spít­al­inn starfar ekki í þjóð­ar­þágu og kannski er umhyggja yfir­valda því skilj­an­lega minni fyrir honum en „RÚV“. Því vekur athygli að traustið á Rík­is­út­varp­inu er þó ekki meira en þetta. [...]Það leynd­ist engum að frétta­stofa »RÚV« var glað­beitt þegar hún sagði frá 70% mældu trausti á „RÚV“ og tók það aug­ljós­lega til sín og vildi að hlust­endur gerðu það líka.

[quote font="0" align="right"]En þá ber að hafa í huga að sam­kvæmt nýbirtum könn­unum horfa nú aðeins rúm 18 pró­sent lands­manna (12-80 ára) á fréttir Rík­is­út­varps­ins. Örlítið fleiri horfa á fréttir Stöðvar 2[/quote]

En þá ber að hafa í huga að sam­kvæmt nýbirtum könn­unum horfa nú aðeins rúm 18 pró­sent lands­manna (12-80 ára) á fréttir Rík­is­út­varps­ins. Örlítið fleiri horfa á fréttir Stöðvar 2, sem er eft­ir­tekt­ar­vert. Ljóst er að Stöð 2 hefur átt í miklum fjár­hags­erf­ið­leikum og sífellt ber­ast fréttir af nýjum upp­sögnum hjá 365.

Mikið hefur verið gert úr upp­sögnum hjá »RÚV« en samt virð­ist aldrei neitt spar­ast við þessar upp­sagnir og starfs­mönnum fækkar ekki. Sem er auð­vitað heil­mik­ill galdur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár