Ekki hætta, enn skal ort!

Þorgeir Tryggva­son, Toggi, mun sinna bókaum­fjöllun fyrir Kjarnann fram að jólum en margar bækur eru að koma út þessa dag­ana. Jóla­bóka­flóðið nær svo hámarki í des­em­ber.

Höfundur: Þórarinn Eldjárn

Fugla­þrugl og naflakrafl
(Með Sigrúnu Eldjárn)

Það gleður þennan áfergju­les­ara ljóð­skálds­ins Þórarins Eldjárns alltaf þegar það rennur upp fyrir honum að hann er þrátt fyrir allt ekki þrjú skáld heldur eitt. Það verður ákaf­lega skýrt þegar hann lætur sér ekki nægja að senda frá sér eina bók, heldur sýnir á sér tvær hliðar í einu. Sem reyn­ist svo ein.

Ó- og lítt­bundnu ljóðin, hátt­bundnu kvæðin og barna­vís­urnar eru þegar að er gáð sama marki brenndar.

Hvert er þá það mark?

Hvað skal segja? Nákvæmni. Hóf­stilltur húmor. En kannski fyrst og síð­ast við­horf hins leit­andi og fróða sæl­kera til tungu­máls­ins. Skoðun á mögu­leikum ein­stakra orða. Oft leit að földum mögu­leikum eða notk­un­ar­kostum. Þórarinn er skáld orð­nautn­ar­innar.

Hann fer oft þá leið að taka hvers­dags­legt fyr­ir­bæri - ýmist i raun­heimum eða mál­heimum. Tuggur og klisjur - og skoða þær með tækjum ljóð­skálds­ins. Sýður þær niður – kveður þær niður.

Og mikið er gaman þegar frum­leg hugsun og snjöll mynd rúm­ast í full­kominni fer­skeytlu. Þannig lagað gerir eng­inn betur en Þórarinn:

Bruna hratt með barða­hví
bílar svartan dregil.
Kókett Esjan kíkir í
Kolla­fjarð­ar­spegil

(Tautar og raular)

og

Rjúpan fer í fötin senn,
fína hvíta dressið.
Bráðum koma byssu­menn,
byrjar jólastressið.

(Fugla­þrugl og naflaskrafl)

Nýju bæk­urnar tvær eru ortar á þessum heima­velli skálds­ins. Fugla­þrugl og naflakrafl, að minn­nsta kosti sú sjö­unda í röð hinna vin­sælu barna­ljóða­bóka Þórarins og Sigrúnar systur hans. Kannski er ein­hver þreyta farin að segja til sín í þessum yrk­ingum, alla­vega þykir mér hún ekki rísa í sömu hæðir og það besta sem áður hefur birst. Of mörg ljóðin ein­kenni­lega enda­slepp, t.d. ljóðið um sjó­ræn­ingj­ann sem á tvennt af öllu sem til stétt­ar­innar heyrir (páfa­gaukum. krókum og staur­fótum) en ekk­ert skip. Af hverju ekki?

Önnur eru snjöll á þennan sér-þór­ar­inska hátt (þó mögu­lega gangi brös­ug­lega að útskýra snilld­ina fyrir mark­hópnum). Hér er afi að kenna börn­unum að stauta með gamla lag­inu:

Hann er bráðum búið spil
en býsna seigur enn:
Með ban­prjóns­að­ferð býr hann til
bók­stafs­trú­ar­menn.

Tautar og raular - full­orð­ins­bókin - skipt­ist síðan í fjóra hluta: Einn lítt- eða óbund­inn, annan með vísum í mis-stífu sam­bandi við hefð­ina, prósa­ljóð og þýð­ingar.

Allt er þar gott, sumt ágætt og ein­staka leiftur af snilld. Prósa­ljóðin vekja hjá þessum les­anda ljúf hug­renn­inga­tengsl við sund­ur­gerð­arsmá­sagna­safnið Margsaga. Aðeins þýð­ing­ar­hlut­inn gefur til­finn­ingu fyrir því að verið sé að tína samaan og sópa upp. Aðallega vegna söng­texta sem þar eru og njóta sín ekk­ert endi­lega mjög vel í lestri, hvorki Þökk sé þessu lífi né hin und­urfagra Haust­vísa Tove Jansson.

Á hinn bóg­inn er ekki hægt annað en að kíma og kæt­ast yfir sokka­ljóði Garrison Keillor:

...

Rann­sóknir stað­festa sjálfsleit hvers sokks,
að sæki þeir flestir í ein­veru loks.
Í sumum er beiskja eftir sam­band við fót,
sumir í klaustri þrá mein­anna bót.
Í sumum er ólg­andi athafna­þrá
en öðrum þeim finnst bara traðkað sér á. ...

Í frumortu hlut­unum eru yrk­is­efnin af ýmsu tagi. Smá heimsósómi, örlítil mæða og slatti af sjálfs­háði. Allt mat­reitt að hætti húss­ins. Eins og við fasta­gest­irnir viljum hafa það. Hvað sem tautar og raular.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár