Bibbi bloggar úr Evróputúr Skálmaldar: Esch-Sur-Alzette

Skálmöld er nú á tæp­lega 7 vikna túr um Evrópu. Dagarnir eru afskap­lega við­burða­ríkir og aðstæður oft afskap­lega skemmti­legar. Snæbjörn, bassa­leik­ari og texta­höf­undur sveit­ar­innar, heldur úti dag­legu bloggi á vef Kjarnans þar sem hann lýsir hinu goð­sagna­kennda rokk­ara­lífi. Táfýla, blóð, sviti, tár og auð­vitað rokk & ról beint í æð.

Lúx­em­búrg já. Hingað hef ég aldrei komið. Og á ekk­ert eftir að líða þannig endi­lega þegar við förum héðan. Bíla­stæði, það var það sem ég sá. Rúmt og gott bíla­stæði sko, en ekk­ert sem svarar fyrir heila þjóð. En hér er allt gott. Fólkið er gott, mat­ur­inn frá­bært, sturtur um allt, sviðið stórt og fram­úr­skar­andi gott, tækni- og annað starfs­fólk ekki bara starfi sínu vaxið heldur líka stór­skemmti­legt og sófar um allt. Sófar! Ég sit í góðum sófa með pláss í kringum mig og það hef ég ekki gert í gríð­ar­lega margar vikur. Litlu hlut­irnir. Æi já.

Ég krass­aði í gær. Ég fór bara í koj­una og reyndi að horfa á bíó­mynd en end­aði á ein­hverjum Top Gear Special um Bond-bíl­ana. Sem ég var búinn að sjá áður og allt. Yfir­leitt hef ég algert óþol fyrir sjón­varps­efni sem ég hef séð áður en þetta var sirka áreytið sem ég réð við. Og svo and­að­ist ég frá fjögur til fjögur. En ég var líka mjög til í þetta þegar ég vakn­aði.

Núna er klukkan 23.16 og ég sit í sófa hér bak­sviðs. Sóóófa. Hér eru allir mínir upp­á­halds­menn hjá mér og við erum að drekka rauð­vín sem

[caption id="attachment_13778" align="alignnone" width="3264"] Bibbi er hér við lykla­borðið, umkringdur helstu nauð­synjum.[/caption]

Anton, hljóð­maður og far­ar­stjóri Rússanna, var að hella í alls­konar glös handa okkur. Ég hef alltaf haft góða til­finn­ingu fyrir þessum góð­lega hobbita, bros­andi gegnum skeggið með hár niður á mjó­bak. En síð­ustu daga hefur hann alger­lega brilla­erað. Mig grunar að hann finni teng­ingu gegnum Flexa sem hefur jú ekki túrað með okkur áður. Þeir eru báðir hljóð­menn og hafa aðstoðað hvorn annan gegnum þetta allt saman. Elu­veitie eru í sirka miðju sett­inu sínu og við erum í slak­anum. Við fórum aðeins fram áðan og hittum meðal ann­ars íslenskan flug­virkja sem sagð­ist heita Bjarki ef ég man rétt. Hann er búinn að búa hér um kring síðan 2005. Afskap­lega þægi­lega skemmti­legur maður.

Það er ró yfir okkur. Svo sem alveg hlátur við og við og allir í stuði en við erum alveg í fjórum sófum. Giggið gekk ljóm­andi vel og við spil­uðum vel í góðu sándi en þetta var svo­lítið stíft allt saman. Þetta er bara svona, ég kíkti inn í sal til Elu­veitie og þar er stemn­ingin svipuð. Auðvitað aðeins fleiri en samt ekki allur munur á. Þetta er áfram erfitt, spila fyrir fólk sem hreyfir sig ekki, en við slökum hvergi á svo mikið er víst. Já, þetta er allt saman satt en víst gömul tugga.

Rúmir tíu dagar eftir og nú erum við þreyttir. Ég ætla ekk­ert að fela það, ég væri til í að fara heim á eftir. En það er vit­an­lega ekki um það að ræða. Ég veit ekki hvar maður væri í kúrf­unni ef sam­ferða­menn­irnir væru ekki svona miklir afar­höfð­ingar. Rúmur mán­uður kom­inn, táfýla, hrotur, rifr­ildi, alls­konar brölt, þynnka, fyll­erí, burður á þungum hlutum dag eftir dag og allir dagar eins og gráir. Þetta er upp­skrift að óskap­legum leið­indum og jafn­vel illindum ef svo ber undir. Við erum allir risa­stórir karakt­erar sem láta finna fyrir sér, höfum ógur­legar sér­viskur og getum allir verið óþol­andi. En þetta gengur. Ein­hvern­veg­inn gengur þetta og nú sitjum við í hnapp og segjum sögur, hlæjum, gönt­umst, segjum brand­ara á kostnað hvers ann­ars og öllum finnst gaman. Þetta er Deb­en­hams, þetta er Skálmöld. Þetta er nákvæm­lega það sem heldur þessu bandi gang­andi. Við skulum alltaf tækla hlut­ina þegar þeir koma upp, vanda­málin eru aldrei stærri en fólkið og þegar dagur kemur að kveldi er þetta létt. Og gaman. Rúmum mán­uði seinna, og reyndar rúmum fimm árum ef því er að skipta. Við þurfum allir að fórna ýmsu fyrir Skálmöld en það gerum við glaðir og með fólkið okkar okkur til stuðn­ings. Ég ætla ekki að hafa þetta lengra í dag. Elu­veitie voru að klára og við ætlum fram að tala við fólkið. Rútan leggur af stað klukkan 2 og Flexi var að stinga upp á Kana. Það líst mér vel á. Á morgun spilum við í Ludwigsburg í Þýska­landi. Ég veit ekk­ert hversu langt er þangað en miðað við þessa tíma­setn­ingu verður það sjálf­sagt svo­lít­ill spotti. Sjáum til hvað ger­ist næst.

Meist­ara­legt dags­ins: Sófar.

Sköll dags­ins: Nei.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár