Blaðamenn DV vildu mæta Þóreyju í dómsal en eigendur vildu semja

Blaða­menn­irnir Jóhann Páll Jóhanns­son og Jón Bjarki Magn­ús­son, sem starfa báðir á DV og hafa skrifað mikið um leka­málið svo­kall­aða, segja að þeir hafi „lýst yfir ein­lægum vilja" til að mæta Þóreyju Vil­hjálms­dóttur, fyrrum aðstoð­ar­manni inn­an­rík­is­ráð­herra, í dóm­sal þrátt fyrir að dómsátt hafi náðst í mál­inu. Þórey stefndi þeim fyrir meið­yrði eftir að hún var rang­lega sögð vera sá starfs­maður sem lekið hefði gögnum um hæl­is­leit­and­ann Tony Omos til fjöl­miðla á for­síðu DV í sumar. Þórey krafð­ist hámarks­refs­ingar, sem í fólst fang­els­is­vist, og fébóta.

Tilkynnt var um sátt í mál­inu fyrr í dag þar sem þeir greiða Þóreyju 330 þús­und krónur í miska­bætur.

[caption id="attachment_13770" align="align­right" width="150"] Þórey Vil­hjálms­dóttir.[/caption]

Þeir Jóhann Páll og Jón Bjarki segja hins vegar að eig­endur DV hafi viljað leita sátta og þeir uni því. Í yfir­lýs­ingu sem þeir sendu frá sér segir að þeir kæri sig ekki „um að sitja uppi með háa reikn­inga, hvað þá að betla fé af vinum og vanda­mönnum til að geta greitt þá. Við erum ekki á þing­far­ar­kaupi en vinnum við að flytja fréttir, meðal ann­ars um það sem ráð­herrar og aðstoð­ar­menn þeirra vilja að leynt fari.
Á heilu ári virð­ist það aldrei hafa hvarflað að stuðn­ings­mönnum inn­an­rík­is­ráð­herra að skamm­ast sín. Við skömm­umst okkar fyrir þau mis­tök sem við gerðum í sumar. En á heild­ina litið erum við stoltir af okkar hlut í að fletta ofan af vald­níðslu og mann­rétt­inda­brotum. Með dóms­sátt þess­ari kaupum við okkur frið til að skrifa áfram um hver þau öfl sem ljúga að almenn­ingi og níð­ast á umkomu­lausu fólki“.

Miklar svipt­ingar hafa verið í eig­enda­hópi DV und­an­farin miss­eri. Reynir Trausta­son, fyrrum rit­stjóri mið­ils­ins, missti yfir­ráð yfir honum í haust og var rek­inn úr starfi í kjöl­farið. Nýlega var til­kynnt að Björn Ingi Hrafns­son, aðal­eig­andi fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­is­ins Vef­pressunnar, hefði keypt 70 pró­sent hlut í DV og að hann muni verða útgef­andi mið­ils­ins ef Sam­keppn­is­eft­ir­litið blessar kaupin.

Þórey hefur látið af störfum sem aðstoð­ar­maður inn­an­rík­is­ráð­herra en Hanna Birna Krist­jáns­dóttir sagði af sér því ráð­herra­emb­ætti í síð­asta mán­uði í kjöl­far þess að hinn aðstoð­ar­maður hennar, Gísli Freyr Val­dórs­son, ját­aði að hafa lekið gögn­unum og var í kjöl­farið dæmdur í átta mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi.

Yfir­lýs­ingu Jóhanns Páls og Jóns Bjarka má lesa í heild sinni hér að neðan.

Yfirlýsing vegna dómssáttar


5. des­em­ber 2014

Dómsátt hefur náðst í máli Þóreyjar Vil­hjálms­dóttur gegn okkur, en máls­höfð­unin varð­aði frétt sem birt­ist í DV þann 20. júní síð­ast­lið­inn. Þar var því rang­lega haldið fram að Þórey væri sá aðili sem kall­aður var starfs­maður B í grein­ar­gerð lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Fréttin var leið­rétt sam­dæg­urs, yfir­lýs­ing send á alla fjöl­miðla og Þórey beðin afsök­unar. Í kjöl­farið höfð­aði hún mál, ekki gegn DV ehf. heldur gegn okkur per­sónu­lega, og krafð­ist hámarks refs­ingar, þ.e. að við yrðum vistaðir í fang­elsi vegna mis­taka okkar. Nokkru síðar var Gísli Freyr Val­dórs­son, nán­asti sam­starfs­maður Þóreyjar, dæmdur í skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir lög­brot gegn hæl­is­leit­end­unum Tony Omos og Evelyn Glory Joseph.

Í heilt ár höfum við skrifað um mál­efni inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, vald­níðslu og lög­brot sem framin voru gegn land­lausu fólki. Hanna Birna Krist­jáns­dóttir sagði af sér ráð­herra­emb­ætti vegna máls­ins en Þórey starf­aði sem póli­tískur aðstoð­ar­maður hennar. Strax í upp­hafi leka­máls­ins tók hún sér stöðu með ráð­herra gegn almenn­ingi líkt og aðrir í yfir­stjórn inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins. Hún sendi DV mis­vísandi upp­lýs­ingar í tölvu­pósti, hún hélt því fram að engum trún­að­ar­upp­lýs­ingum hefði verið lekið úr inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu þótt hið gagn­stæða lægi í augum uppi og lét að því liggja í útvarps­við­tali að við létum stjórn­ast af ann­ar­legum hvötum fremur en ein­lægum vilja til að leiða sann­leik­ann í ljós. Ráð­herr­ann sjálfur fylgdi þessu eftir með því að hringja í rit­stjóra DV og fara fram á að við yrðum reknir.

Sú frétt sem birt­ist í DV þann 20. júní átti sér langan aðdrag­anda og byggði á mán­aða­langri heim­ilda­vinnu þar sem rætt var við starfs­menn inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, Morg­un­blaðs­ins, 365-miðla og lög­regl­unnar. Þórey vildi ekki ræða við DV í síma við vinnslu frétt­ar­innar jafn­vel þótt hún gegndi þá hlut­verki upp­lýs­inga­full­trúa ráðu­neyt­is­ins í fjar­veru Jóhann­esar Tóm­as­sonar. Henni var hins vegar gert ljóst hvert efni frétt­ar­innar var og boðið að koma athuga­semdum á fram­færi sem hún kaus að gera ekki.

Málssókn Þóreyjar hefur verið gagn­rýnd harð­lega meðal ann­ars af Frétta­mönnum án landamæra, Alþjóða­sam­tökum blaða­manna, International Modern Media Institute og Blaða­manna­fé­lagi Íslands. Þessi sam­tök hafa deilt á íslenska meið­yrða­lög­gjöf, meðal ann­ars þær laga­greinar sem máls­höfðun Þóreyjar og refsikrafa hennar byggði á. Mál hennar vakti athygli utan land­steina, enda var hún aðstoð­ar­kona inn­an­rík­is­ráð­herra, þess ráð­herra sem fór með mann­rétt­inda­mál á Íslandi.

Það er áhyggju­efni fyrir blaða­menn á Íslandi að geta átt von á því að ráð­herrar og póli­tískir aðstoð­ar­menn vegi að starfs­ör­yggi þeirra með þeim hætti sem birst hefur í leka­mál­inu.

Við höfum lýst yfir ein­lægum vilja til að mæta Þóreyju Vil­hjálms­dóttur í dóms­sal. Eigendur DV ehf. vildu hins vegar leita sátta og unum við því. Við kærum okkur ekki um að sitja uppi með háa reikn­inga, hvað þá að betla fé af vinum og vanda­mönnum til að geta greitt þá. Við erum ekki á þing­far­ar­kaupi en vinnum við að flytja fréttir, meðal ann­ars um það sem ráð­herrar og aðstoð­ar­menn þeirra vilja að leynt fari.

Á heilu ári virð­ist það aldrei hafa hvarflað að stuðn­ings­mönnum inn­an­rík­is­ráð­herra að skamm­ast sín. Við skömm­umst okkar fyrir þau mis­tök sem við gerðum í sumar. En á heild­ina litið erum við stoltir af okkar hlut í að fletta ofan af vald­níðslu og mann­rétt­inda­brotum. Með dóms­sátt þess­ari kaupum við okkur frið til að skrifa áfram um hver þau öfl sem ljúga að almenn­ingi og níð­ast á umkomu­lausu fólki.

Virð­ing­ar­fyllst,
Jóhann Páll Jóhanns­son
Jón Bjarki Magn­ús­son
blaða­menn

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár