Rio Tinto Alcan afhendir orku og greiðir 17 milljónir dala

Rio Tinto Alcan á Íslandi og Lands­virkjun hafa samið um breyt­ingu á orku­af­hend­ingu sem end­ur­speglar betur orku­þörf álvers­ins í Straums­vík, að því er segir í til­kynn­ingu frá Lands­virkjun. Rio Tinto Alcan greiðir Lands­virkjun 17 millj­ónir Banda­ríkja­doll­ara, vegna kostn­að­ar­ins sem það hafði í för með sér fyrir Lands­virkjun að reisa Búð­ar­háls­virkjun fyrr en þörf krafði.

Árið 2010 gerðu Lands­virkjun og Rio Tinto Alcan með sér raf­magns­samn­ing sem nær til árs­ins 2036. Lands­virkjun reisti Búð­ar­háls­virkjun til að efna samn­ing­inn og Rio Tinto Alcan réð­ist í 500 millj­óna doll­ara fjár­fest­ing­ar­verk­efni í því skyni að auka fram­leiðslu álvers­ins og hefja fram­leiðslu á verð­mæt­ari afurðum.

Eins og Rio Tinto Alcan hefur áður upp­lýst hefur fram­leiðslu­aukn­ingin sem stefnt var að ekki náðst að fullu. „Ollu því ófyr­ir­séðar hindr­anir hvað varðar bæði örygg­is­mál og tækni­lega þætti verk­efn­is­ins. Álverið hefur af þeim orsökum ekki full­nýtt þá orku sem samn­ing­ur­inn frá 2010 felur í sér,“ segir í til­kynn­ingu frá Lands­virkjun.

Sam­komu­lag fyr­ir­tækj­anna felur meðal ann­ars í sér að Rio Tinto Alcan skilar Lands­virkjun 35 MW af ónot­uðu afli, sem hægt er að nota til að auka fram­boð raf­orku á íslenskum raf­orku­mark­aði.

Breyt­ing­arnar á samn­ingnum eru báðum aðilum til hags­bóta, segir í til­kynn­ing­unni. Lands­virkjun öðl­ast aukna mögu­leika til raf­orku­sölu og á sama tíma er mögu­leikum Rio Tinto Alcan til áfram­hald­andi vaxtar við­haldið.

Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar, seg­ist fagna sam­komu­lag­inu. „Með því er greitt úr ófyr­ir­séðum vanda­málum sem upp komu við fjár­fest­ing­ar­verk­efni Rio Tinto Alcan. Sam­komu­lagið grund­vall­ast á langvar­andi við­skipta­sam­bandi fyr­ir­tækj­anna sem og virð­ingu fyrir gagn­kvæmum við­skipta­hags­munum."

Rannveig Rist, for­stjóri Rio Tinto Alcan á Íslandi, segir sam­komu­lagið stað­festa að við­skipta­sam­band áliðn­aðar og orku­fram­leiðslu ein­kenn­ist af virð­ingu. „Við erum stolt af því að hafa staðið að langstærsta fjár­fest­ing­ar­verk­efni á Íslandi á und­an­förnum árum, í því skyni að fram­leiða verð­mæt­ari afurðir, auka rekstr­ar­ör­yggi, efla meng­un­ar­varnir og auka fram­leiðsl­una. Þetta hefur skapað yfir 1.000 árs­verk á tímum þegar íslenskt efna­hags­líf þurfti hvað mest á þeim að halda. Sam­komu­lagið við Lands­virkjun er enn ein stað­fest­ing þess að við­skipta­sam­band áliðn­aðar og orku­fram­leiðslu á Íslandi ein­kenn­ist af gagn­kvæmri virð­ingu og gagn­kvæmum ávinn­ingi,“ er haft eftir Rann­veigu í til­kynn­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár