Færði lögregluna á Höfn yfir í sitt kjördæmi rétt fyrir skipun Ólafar

Síðasta verk Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, for­sæt­is­ráð­herra, sem dóms­mála­ráð­herra var að setja nýja reglu­gerð um lög­reglu­um­dæmi lög­reglu­stjóra, þar sem sveit­ar­fé­lagið Horna­fjörður telst nú til umdæmis lög­reglu­stjór­ans á Aust­ur­landi. Með ákvörðun sinni færði þáver­andi dóms­mála­ráð­herra lög­regl­una á Höfn úr Suð­ur­kjör­dæmi yfir í Norð­aust­ur­kjör­dæmi, sem vill svo til að er hans kjör­dæmi.

Lög­reglu­yf­ir­völdum og sveit­ar­stjórn­ar­mönnum barst til­kynn­ing um reglu­gerð­ina í tölvu­pósti klukkan rétt rúm­lega eitt í gær, en þá var nýhaf­inn rík­is­ráðs­fundur á Bessa­stöðum þar sem Ólöf Nordal tók form­lega við sem nýr inn­an­rík­is­ráð­herra. Samhliða því færð­ust dóms­málin frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu aftur yfir í inn­an­rík­is­ráðu­neytið.

„Forkastanleg vinnubrögð“


Sveit­ar­stjórn­ar­menn á Horna­firði eru æfir vegna reglu­gerð­ar­innar, sem Sig­mundur Davíð setti á loka­metr­unum sem dóms­mála­ráð­herra, en Kjarninn hefur undir höndum harð­yrt bréf sem Björn Ingi Jónsson bæj­ar­stjóri á Horna­firði sendi á þing­menn kjör­dæm­is­ins í gær sem og nýskip­aðan dóms­mála­ráð­herra.

Í bréf­inu segir: „Nú í dag setur dóms­mála­ráð­herra reglu­gerð sem gengur þvert á það sem búið er að tala um und­an­farnar vikur og alger­lega án nokk­urs sam­ráðs við sveit­ar­fé­lagið eða SASS (Samtök sunn­lenskra sveit­ar­fé­laga). Að mínu mati eru þetta for­kast­an­leg vinnu­brögð og finnst mér að svona ákvarð­anir eigi ekki að eiga sér stað á árinu 2014.“

Björn Ingi segir í bréf­inu að emb­ætti lög­reglu­stjóra á Höfn hafi verið flutt á Eski­fjörð árið 2007, án nokk­urs sam­ráðs við sveit­ar­fé­lagið. Svo hafi inn­an­rík­is­ráðu­neytið óskað eftir skoðun sveit­ar­fé­lags­ins á til­högun lög­reglu­um­dæm­is­ins, sem fram komi í bókun bæj­ar­ráðs frá því í ágúst. Þar tekur bæj­ar­ráð Horna­fjarðar undir sjón­ar­mið sem fram komu á fundi SASS, að hags­munum sveit­ar­fé­lags­ins verði best borgið til lengri tíma með því að skipan lög­reglu­mála fylgi kjör­dæm­is­mörkum.

Þá segir í bréf­inu að skoð­unum sveit­ar­fé­lags­ins hafi verið komið á fram­færi við starfs­mann inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins á Lands­þingi Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga á Akureyri, þar sem sveit­ar­fé­lagið hafi verið full­vissað um að hlustað yrði á afstöðu þess með hand­sali.

Samstarf við lögreglustjóra Suðurlands komið af stað


„Það næsta sem við fréttum er að það sé farið að vinna eftir því að við fylgjum Suð­ur­landi. Nýr lög­reglu­stjóri Suð­ur­lands hefur komið hingað og hitt starfs­menn lög­reglu­um­dæm­is­ins hér á Höfn og í gangi er skipu­lags­vinna þessu tengd. Ég átti góðan fund með lög­reglu­stjóra Suð­ur­lands og yfir­lög­reglu­þjóni þar sem sú vinna sem framundan er var rædd. Í síð­ustu viku fékk ég fund­ar­boð frá lög­reglu­stjóra Suð­ur­lands um að koma til fundar við hann í næstu viku þar sem hann ætl­aði að hitta alla fram­kvæmd­ar­stjóra sveit­ar­fé­laga í sínu umdæmi.“

Að lokum skrifar Björn Ingi bæj­ar­stjóri á Horna­firði: „Þess vegna spyr ég HVAÐ ER AÐ GERAST HJÁ YKKUR?! Ég óska eftir því að þið beitið ykkur í því að þessi ákvörðun verði end­ur­skoðuð og að unnið verð áfram í þá átt sem hér hefur verið lýst.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár