Samherji greiðir starfsfólki í landi ríflega 500 þúsund aukalega

Samherji greiðir öllu starfs­fólki sínu í landi 450 þús­und króna jóla­bónus ofan á umsamda 74 þús­und króna des­em­upp­bót. Þetta kemur fram í bréfi sem Þor­steinn Már Bald­vins­son, fram­kvæmda­stjóri Samherja, sendi starfs­mönnum og birt er á vef fyr­ir­tæk­is­ins.

Samherji greiddi öllum starfs­mönnum 61 þús­und króna orlofs­upp­bót í maí, og greiðir starfs­fólki því ríf­lega 510 þús­und krónur auk­lega í laun á þessu ári.

Samtals eru um 500 starfs­menn sem fá þessa launa­upp­bót, sam­kvæmt því sem fram kemur í bréfi Þor­steins Más, og nemur við­bót­ar­launa­fram­lag til þeirra því um 255 millj­ónum króna.

Samherji hagn­að­ist um tæp­lega 22 millj­arða króna í fyrra en heild­ar­tekjur fyr­ir­tæk­is­ins, það er Sam­herj­a­sam­stæð­unnar, námu um 90 millj­örðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár