Þingmaður skipti sér af skuldamáli fyrirtækis sem styrkti hann

Jón Gunn­ars­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks og for­maður atvinnu­vega­nefndar Alþingis, hafði ítrekuð afskipti af skulda­máli verk­taka­fyr­ir­tæk­is­ins Fjarð­ar­grjóts ehf., gagn­vart fjár­mögn­un­ar­fyr­ir­tæk­inu Lýsingu. Þetta kom fram í máli Jóns í ræðu­stóli Alþingis í gær, en verk­taka­fyr­ir­tækið styrkti fram­boð þing­manns­ins í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi í fyrra um fimm­tíu þús­und krónur. Þá gagn­rýndi hann vinnu­brögð fjár­mögn­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins sömu­leiðis í ræðu sinni í gær.

Jón kvað sér hljóðs í þingsalnum í kjöl­far ræðu Ásmundar Frið­riks­sonar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks, sem gagn­rýndi inn­heimtu­hörku banka og fjár­mála­stofn­anna gagn­vart fólki.

Eins og fram hefur komið í fjöl­miðlum fékk Jón hæstu fram­lögin til próf­kjörs á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í kjör­dæm­inu, en fram­lög til þess námu tæpum 2,8 millj­ónum króna. Fram­boðið var auk þess það dýrasta í Suð­vest­ur­kjör­dæmi. Fram­lögin til fram­boðs Jóns komu meðal ann­ars frá sjáv­ar­út­vegs- og verk­taka­fyr­ir­tækjum.

[quote font="0" align="right"]„Ég gerði ítrek­aðar til­raunir í síð­ustu viku og síð­ustu tíu daga, til þess að ná sam­bandi við for­ystu­menn Lýsingar, til þess að fá á þessu skýr­ingar, [...]“[/quote]

Málið sem Jón ljáði máls á í ræðu­stóli Alþingis í gær, undir dag­skrár­liðnum umræður um störf þings­ins, snérist um dóms­mál áður­nefnds verk­taka­fyr­ir­tækis og fjár­mögn­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Lýsingar. Hæsti­réttur stað­festi úrskurð Hér­aðs­dóms Reykja­ness í júlí, þar sem Lýsingu var heim­ilað að fá ell­efu vinnu­vélar og einn fólks­bíl, auk ann­arra tækja, tekin með beinni aðfar­ar­að­gerð úr vörslu Fjarð­ar­grjóts. Fyr­ir­tækin gerðu með sér kaup­leigu­samn­inga, með ólög­mætri geng­is­trygg­ingu, vegna tækj­anna, sem verk­taka­fyr­ir­tækið efndi ekki vegna deilna um end­ur­út­reikn­inga á samn­ing­unum. Lýsing rifti samn­ingnum í byrjun októ­ber árið 2012, en þá námu van­skil Fjarð­ar­grjóts gagn­vart Lýsingu tæpum 65 millj­ónum króna.

Í ræðu sinni sagði Jón að Lýsing hefði metið tækin á 46 millj­ónir króna, en þau hafi verið seld á nauð­ung­ar­upp­boði fyrir 73 millj­ónir. Þá sagði hann mark­aðsvirði tækj­anna nema tæpum 120 millj­ónum króna. „Þetta er auð­vitað mjög slá­andi dæmi. [...] Ég gerði ítrek­aðar til­raunir í síð­ustu viku og síð­ustu tíu daga, til þess að ná sam­bandi við for­ystu­menn Lýsingar, til þess að fá á þessu skýr­ingar, og satt best að segja fékk ég engin svör við því, þrátt fyrir að hafa talað þar við fleiri en einn starfs­mann og lagt inn skila­boð og sent tölvu­pósta til þess að ítreka mál mitt.“

Jón hyggst leita með málið til Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, og segir að Samtök iðn­að­ar­ins hafi sömu­leiðis leitað skýr­inga hjá Lýsingu vegna sam­bæri­legra mála, og ekki fengið svör. „Og ég spyr virðu­legi for­seti, ef það er ekki vörn í lögum fyrir sam­borg­ara okkar, fyr­ir­tæki og ein­stak­linga, í málum sem þessum, þá er eitt­hvað brogað í okkar lög­gjöf, og ég bara vona það að þetta séu dæmi sem að Fjár­mála­eft­ir­litið sjái ástæðu til þess að fara og skoða betur,“ sagði Jón Gunn­ars­son í ræðu­stóli Alþingis í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár