Pæling dagsins: Bjarni Ben að styrkja stöðu sína?

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og efna­hags- og fjár­mála­ráð­herra, kom mörgum á óvart með nýjasta útspili sínu, þegar hann ákvað að fá Ólöfu Nordal aftur inn í íslensk stjórn­mál sem inn­an­rík­is­ráð­herra. Hún kemur að borð­inu þar sem Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, inn­an­rík­is­ráð­herra, var þar til hún sagði af sér vegna leka­máls­ins. Hér vaknar spurn­ingin; er Bjarni að styrkja stöðu sína og Sjálf­stæð­is­flokks­ins með þess­ari skipan utan­þings­ráð­herra? Að mati bréf­rit­ara er svarið við því, já. Ólöf er sterkur stjórn­mála­maður, sýndi það á þingi, og var vel liðin af sam­herjum og and­stæð­ingum sömu­leiðis. Hún getur verið hörð, en snjöll í sam­skiptum. Þá er hún einkar vel liðin hjá konum í Sjálf­stæð­is­flokknum og raunar einnig í öðrum flokkum. Að þessu leyti er aug­ljóst að Ólöf er hæf í starfið. Mesta áhættan hjá Bjarni gæti falist í því að þing­flokk­ur­inn telji sig svik­inn. En að sama skapi eru þetta skila­boð hjá Bjarna. Hann þorir að taka erf­iðar ákvarð­anir eins og þessar, og gerir auk þess ekki upp á milli þing­manna. Það er mik­il­vægt, og getur aukið á sam­heldni í hópnum þegar farið verður í gegnum erf­iðar ákvarð­anir á næstu miss­erum.

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár