RÚV hefur sagt upp samningi við Veðurfélagið

RÚV sagði upp samn­ingum við Veð­ur­stof­una og Veð­ur­fé­lagið ehf. í sumar, en Veð­ur­fé­lagið hefur sinnt veð­ur­fréttum í sjón­varpi á RÚV und­an­farin ár í verk­töku. Veð­ur­fé­lagið mun áfram sinna veð­ur­fréttum í sjón­varpi RÚV fram að ára­mótum.

Veð­ur­fé­lagið ehf. er í eigu Haraldar Ólafs­sonar veð­ur­fræð­ings, sem jafn­framt er fram­kvæmda­stjóri félags­ins, en hann kom sömu­leiðis að stofnun þess árið 1998, ásamt veð­ur­fræð­ing­unum Trausta Jónssyni og Þórönnu Páls­dóttir. Aðal­starf­semi félags­ins er dag­skrár­gerð í verk­töku.

Veð­ur­fé­lagið skil­aði síð­ast inn árs­reikn­ingi vegna rekstr­ar­árs­ins 2009, sem skilað var til árs­reikn­inga­skrár í mars árið 2011. Hagnaður félags­ins í árs­lok 2009 nam rétt rúmum 54.000 krónum, en þá var eigið fé þess nei­kvætt um 2,4 millj­ónir króna.

Rakel Þor­bergs­dóttir frétta­stjóri RÚV segir að ákveðið hafi verið að segja upp samn­ingum við Veð­ur­stofu Íslands og Veð­ur­fé­lagið í sumar, en frétta­stofan eigi nú í við­ræðum við veð­ur­fræð­inga sem sinnt hafa veð­ur­fréttum í sjón­varpi um frekara sam­starf. „Við vildum end­ur­skipu­leggja veð­ur­þjón­ust­una heild­stætt, það er fyrir sjón­varp, útvarp og vef­inn og huga að eðli­legri þróun og breyt­ingum. Við leit­uðum til­boða og hug­mynda frá Veð­ur­stof­unni, Veð­ur­fé­lag­inu og Belgingi, og ákváðum að ganga til frek­ari við­ræðna við Veð­ur­stof­una. Samn­ing­ur­inn við Veð­ur­fé­lagið hefur verið fram­lengdur fram að ára­mótum, sam­hliða munum við halda áfram við­ræðum okkar við núver­andi veð­ur­frétta­menn um áfram­hald­andi sam­starf.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár