Ólöf Nordal verður nýr innanríkisráðherra

Ólöf Nordal, fyrr­ver­andi vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, verður næsti inn­an­rík­is­ráð­herra. Þetta hefur Kjarninn fengið stað­fest innan úr þing­flokki Sjálf­stæð­is­flokks, sem fékk fréttir af skipun Ólafar á þing­flokks­fundi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í morgun.

Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, sem sagði af sér sem inn­an­rík­is­ráð­herra á dög­unum, mun form­lega láta af störfum á rík­is­ráðs­fundi á Bessa­stöðum í dag, þar sem skipun Ólafar verður form­lega stað­fest. Mála­flokkur dóms­mála mun í kjöl­farið aftur fara undir inn­an­rík­is­ráðu­neytið.

Í til­kynn­ingu til fjöl­miðla segir:

Ólöf var vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins 2010–2013. Hún sat á Alþingi fyrir Norð­aust­ur­kjör­dæmi 2007–2009 og Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður 2009–2013.

Ólöf er lög­fræð­ingur frá Háskóla Íslands og með MBA–gráðu frá Háskól­anum í Reykja­vík. Hún hefur víð­tæka starfs­reynslu og hefur gegnt fjölda trún­að­ar­starfa. Á þingi sat Ólöf meðal ann­ars í sam­göngu­nefnd sem vara­for­maður, í alls­herj­ar­nefnd, utan­rík­is­mála­nefnd, stjórn­skip­unar– og eft­ir­lits­nefnd, fjár­mála­nefnd, kjör­bréfa­nefnd og sér­nefnd um stjórn­ar­skrár­mál.

Áður en hún tók sæti á Alþingi var hún fram­kvæmda­stjóri Orku­söl­unnar og þar áður fram­kvæmda­stjóri sölu­sviðs RARIK, 2004–2005 og yfir­maður heild­sölu­við­skipta hjá Lands­virkjun, 2002–2004.

Ólöf var deild­ar­stjóri laga­deildar Háskól­ans á Bifröst, frá 2001–2002 auk þess sem hún sinnti stunda­kennslu við skól­ann 1999–2002 sam­hliða starfi sínu sem lög­fræð­ingur Verð­bréfa­þings Íslands á árunum 1999–2001. Á árunum 1996–1999 gegndi hún starfi deild­ar­stjóra í sam­göngu­ráðu­neyt­inu og starf­aði í lög­fræði­deild Lands­banka Íslands 1995–1996.

Eig­in­maður hennar er Tómas Már Sig­urðs­son, for­stjóri Alcoa í Evrópu og Mið-Aust­ur­löndum, en saman eiga þau fjögur börn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár