Pæling dagsins: Rannsókn eftirlitsins rótin að breytingum?

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Málefni sem snúa að upp­stokkun á eign­ar­haldi greiðslu­korta hafa verið frétta­efni á vef Kjarnans að und­an­förnu. Eitt af því sem ekki hefur hefur verið svarað nægi­lega skýr­lega er hvar rann­sókn Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins á starf­semi bank­anna og aðkomu þeirra að greiðslu­korta­fyr­ir­tækj­unum stendur núna. Í árs­skýrslu Lands­bank­ans frá árinu 2013, kemur þetta fram: „Í mars 2013 til­kynnti Sam­keppn­is­eft­ir­litið bank­anum bráða­birgða­mat og nið­ur­stöður sínar í tveimur málum. Fyrra málið varðar íviln­andi skil­mála sem Lands­banki Íslands hf. (nú LBI hf.) bauð á árunum 2004-2010 og sem bank­inn bauð síðar við­skipta­vinum í ein­stak­lings­við­skiptum, sér í lagi í tengslum við hús­næð­is­lán. Lands­bank­inn skil­aði svari sínu í júní 2013 og hafn­aði öllum ásök­unum um brot á sam­keppn­is­reglum. Bankinn hefur ekki upp­lýs­ingar um hvenær Sam­keppn­is­eft­ir­litið muni grípa til frek­ari aðgerða í mál­inu en hefur lýst vilja sínum til að ganga til við­ræðna. Seinna málið snýst aðal­lega um meinta aðild Lands­banka Íslands hf. (nú LBI hf.) og síðar bank­ans um það hvernig ákvarð­anir voru teknar um milli­gjöld greiðslu­korta. Bankinn skil­aði svari sínu í júní 2013 og hafn­aði öllum ásök­unum um brot á sam­keppn­is­reglum. Bankinn og Sam­keppn­is­eft­ir­litið hafa fundað nokkrum sinnum til að reyna að leita leiða til að útkljá málið.“ Samkvæmt svörum frá bank­anum þá á þetta allt við ennþá, ekk­ert hefur breyst. Getur verið að þetta sé und­ir­liggj­andi ástæða þess að farið er hratt í þessa eigna­sölu á hlutnum í Borgun, til val­inna fjár­festa, og nú sé unnið að sölu á 38 pró­sent hlut í Valitor? Það á vænt­an­lega eftir að koma í ljós. Kjarninn óskaði eftir upp­lýs­ingum um þetta frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu og svarið þaðan var þetta. „Ég get því miður ekki tjáð mig um þetta á þessu stigi,“ sagði Páll Gunnar Pálsson, for­stjóri, í sam­tali við Kjarnann. Það verður áhuga­vert að fylgj­ast með fram­hald­inu...

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár