FRÍ vill að betur verði staðið að framkvæmd Reykjavíkurmaraþons

Stjórn Frjáls­í­þrótta­sam­bands Íslands (FRÍ) tekur undir gagn­rýni Almenn­ings­hlaupa­nefndar sam­bands­ins á fram­kvæmd Reykja­vík­ur­mara­þons­ins og mun óska eftir við­ræðum við stjórn­endur hlaups­ins um nauð­syn­legar end­ur­bætur á fram­kvæmd Reykja­vík­ur­mara­þons í fram­tíð­inni. Þetta kemur fram í sam­þykkt frá síð­asta stjórn­ar­fundi FRÍ, sem hald­inn var á mánu­dag­inn, og Kjarninn hefur undir höndum.

Reykja­vík­ur­mara­þon heyrir undir stjórn Íþrótta­banda­lags Reykja­víkur (ÍBR), þrátt fyrir að FRÍ hafi lög­sögu yfir hlaup­inu.

Kæra vegna meints svindls kom umræðunni af stað


Umræðu um fram­kvæmd Reykja­vík­ur­mara­þons má rekja til kæru hlauparans Péturs Sturla Bjarna­sonar á hendur Arnari Pét­urs­syni, Íslands­meist­ara karla í mara­þoni, þar sem Arnar var sak­aður um svindl í hlaup­inu, sem fram fór 23. ágúst síð­ast­lið­inn, með því að hafa notið lið­sinnis hjól­reiða­manna í hlaup­inu, sem er brot á reglum hlaups­ins.

Yfir­dóm­nefnd við­ur­kenndi að reglur hlaups­ins hefðu verið brotnar, en vís­aði kærunni engu að síður frá þar sem ekki þótti sannað að hjól­reiða­menn­irnir hefðu aðstoðað Arnar. Nið­ur­staða dóm­nefnd­ar­innar var þá kærð til dóm­stóls ÍSÍ, sem stað­festi hana. Þeirri nið­ur­stöðu var áfrýjað til áfrýj­un­ar­dóm­stóls ÍSÍ, sem tók ekki málið til efn­is­legrar með­ferðar vegna form­galla á kæru máls­ins.

Almenningshlaupanefnd gagnrýndi framkvæmd hlaupsins


Í nýlegri ályktun Almenn­ins­hlaupa­nefndar FRÍ um málið, sem Kjarninn hefur undir höndum og fjall­aði um, kemur fram gagn­rýni á fram­kvæmd Reykja­vík­ur­mara­þons. Þar segir að FRÍ hafi lög­sögu yfir götu­hlaupum, sem þurfi að kynna betur meðal hlaupa­hald­ara og þátt­tak­enda. Þegar um Íslands­meist­ara­mót sé að ræða, eins og í til­felli Reykja­vík­ur­mara­þons, skuli fara eftir reglum FRÍ um fram­kvæmd þeirra, sem byggja á alþjóð­legum reglum um meist­ara­mót í götu­hlaupum. Þar er til að mynda skýrt bann við hraða­stjórnun.

Þá hafði FRÍ enga aðkomu að fram­kvæmd hlaups­ins eða dóm­gæslu, að því er fram kemur í áður­nefndri ályktun Almenn­ings­hlaupa­nefndar sam­bands­ins. Hlaupa­hald­arar (ÍBR) hafi kynnt sínar eigin reglur, þar sem ekki var vísað sér­stak­lega í reglur FRÍ. „Taka þarf af öll tví­mæli um hvaða reglum fara eigi eftir við fram­kvæmd meist­ara­móta í götu­hlaupum. Nefndin leggur til að FRÍ skipi yfir­dóm­ara þegar um Íslands­meist­ara­mót í götu­hlaupum er að ræða,“ segir í ályktun hlaupa­nefndar.

Að lokum gerði­Al­menn­ings­hlaupa­nefnd athuga­semd við kæru­með­ferð máls­ins. Kæran hafi aldrei komið til afgreiðslu hjá FRÍ, sem hefði átt að taka málið til afgreiðslu, þar sem FRÍ hafi lög­sögu yfir Íslands­meist­ara­keppni í götu­hlaupum, áður en það fór til dóm­stóls ÍSÍ: „Mik­il­vægt sé að far­vegur kæru­mála sé skýr.“

Eins og áður segir er stjórn FRÍ sam­mála gagn­rýni Almenn­ings­hlaupa­nefndar sam­bands­ins, og mun óska eftir við­ræðum við ÍBR um nauð­syn­legar end­ur­bætur á fram­kvæmd hlaups­ins. Næsta Reykja­vík­ur­mara­þon fer fram 22. ágúst á næsta ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár