Skattrannóknarstjóri ræður því hvort gögnin verði keypt

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að skatt­rann­sókn­ar­stjóri hafi sjálf­stæða skyldu til að leggja mat á virði eða mik­il­vægi gagn­anna um eignir Íslend­inga í skatta­skjólum fyrir þau verk­efni sem emb­ættið sinnir. „Gengið er út frá því að sama gildi hér og um aðra rík­is­að­ila að ekki verði gerðir samn­ingar við aðra en þá sem til þess eru bærir, enda hefur ekki annað komið fram en að gögnin séu föl frá slíkum aðila,“ segir í til­kynn­ingu á vef ráðu­neyt­is­ins.

Í henni segir enn fremur að ráðu­neytið hafi und­an­farið skoðað hvort þörf sé á að treysta og skýra betur vald­heim­ildir skatt­yf­ir­valda og ann­arra stjórn­valda til að sporna gegn skatt­und­anskoti og skattsvikum. „Tilefnið er m.a. að skatt­rann­sókn­ar­stjóra voru boðnar upp­lýs­ingar til kaups fyrr á árinu um aflands­fé­lög skráð í eigu Íslend­inga í þekktum skatta­skjólum,“ segir í til­kynn­ing­unni.

„Meti skatt­rann­sókn­ar­stjóri það svo að gögnin geti nýst emb­ætt­inu við úrlausn mála sem það sinnir og að mögu­legt sé að skil­yrða greiðslu til selj­anda gagn­anna þannig að þær nemi að hámarki til­teknu hlut­falli af inn­heimtu þeirra skatt­krafna sem af gögn­unum leiðir er ráðu­neytið reiðu­búið að tryggja þær fjár­heim­ildir sem nauð­syn­legar eru til að ráð­ast í öflun umræddra gagna, með eðli­legum fyr­ir­vörum um sar­máð áður en til skuld­bind­inga er gengið,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Þá hefur fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra tekið ákvörðun um að skipa starfs­hóp sem mun skoða hvort ástæða sé til að taka upp svokölluð „Amnesty“ ákvæði í íslensk skatta­lög, svipað og gert hefur verið í nágranna­lönd­unum okkar. Hópurinn mun jafn­framt leggja mat á það hvort laga­heim­ildir skatt­yf­ir­valda til öfl­unar upp­lýs­inga í bar­átt­unni gegn skattsvikum séu full­nægj­andi. Hópurinn skilar nið­ur­stöðum til ráð­herra eigi síðar en 15.febr­úar 2015. Í hópnum eru Ása Ögmunds­dóttir, lög­fræð­ingur, Guðrún Jenný Jóns­dóttir lög­fræð­ingur til­nefnd af Skatt­rann­sókn­ar­stjóra, Lísa K. Yoder lög­fræð­ingur til­nefnd af Skatt­rann­sókn­ar­stjóra, og Guðni Ólafsson við­skipta­fræð­ingur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár