Ríkisreikningur gefur kolranga mynd af kostnaði við hrunið

Samkvæmt skrif­legu svari fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra við fyr­ir­spurn Elsu Láru Arn­ar­dóttur, þing­konu Fram­sókn­ar­flokks­ins, hefur rík­is­sjóður greitt 153 millj­arða króna í vexti og verð­bætur vegna lána, sem tekin voru til end­ur­reisnar á fjár­mála­kerf­inu frá banka­hruni í októ­ber árið 2008 til dags­ins í dag. Kjarninn greindi frá mál­inu í gær.

Gylfi Magn­ús­son, dós­ent í við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands og fyrr­ver­andi efna­hags- og við­skipta­ráð­herra, segir á Facebook síðu sinni að talan gefi kol­ranga mynd af raun­veru­legum kostn­aði rík­is­ins vegna falls fjár­mála­kerf­is­ins.

Í stöðu­færslu skrifar Gylfi: „Tökum t.d. féð sem lagt var inn í ann­ars vegar Seðla­bank­ann og hins vegar Lands­bank­ann. Í báðum til­fellum gaf rík­is­sjóður út skulda­bréf sem lagt var inn í við­kom­andi banka. Seðla­bank­inn er að öllu leyti í eigu rík­is­sjóðs og Lands­bank­inn að nær öllu leyti. Það þýðir að ríkið er að greiða sjálfu sér vexti. Bæði útgjöldin og tekj­urnar lenda því hjá rík­inu. Ef gerður væri sam­stæðu­reikn­ingur fyrir Ríkið Group þá myndu þessar vaxta­greiðslur þurrkast út. Þetta er því ekki raun­veru­legur kostn­aður fyrir ríkið, þótt hann virð­ist það eins og rík­is­reikn­ingur er tek­inn saman. Þetta eru milli­færslur innan opin­bera geirans.“

Gylfi segir töl­urnar ekki gefa rétta mynd af því mikla tjóni sem ríkið varð fyrir vegna banka­hruns­ins. „...sér­stak­lega þegar Seðla­bank­inn fór á hlið­ina vegna þess að hann hafði tekið gölluð veð í aðdrag­anda hruns, en þessar tölur gefa ekki rétta mynd af því tjóni (það var raunar mun meira en 153 millj­arðar).“

[caption id="attachment_13530" align="aligncenter" width="502"] Stöðu­upp­færsla Gylfa Magn­ús­sonar á Facebook.[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár