Götusmiðjan aftur af stað í óþökk barnaverndaryfirvalda

Guð­mundur Týr Þór­ar­ins­son, betur þekktur sem Mummi í Götu­smiðj­unni, hefur nú hafið söfnun fyrir neyð­ar­at­hvarfi og rekstri úti­deildar fyrir ung­menni á göt­unni. Landsátakið, eins og söfn­unin er kölluð í heil­síðu aug­lýs­ingu sem birt­ist í Frétta­blað­inu í fyrra­dag, ber yfir­skrift­ina: „Jól á göt­unni.“

Þeir sem vilja leggja mál­efn­inu lið geta ýmist greitt val­greiðslu­kröfu upp á 650 krónur, sem komin er inn í heima­banka lands­manna, hringt í til­tekið númer þar sem 1.500 krónur fær­ast á sím­reikn­ing við­kom­andi eða keypt svo­kall­aðan vernd­ar­engil sem fer í sölu 5. des­em­ber næst­kom­andi.

[caption id="attachment_13534" align="aligncenter" width="673"] Aug­lýs­ingin sem birt­ist í Frétta­blað­inu í fyrra­dag.[/caption]

Þá segir í aug­lýs­ing­unni: „Að und­an­förnu hefur sam­fé­lagið misst allt of mörg ung­menni í kjöl­far vímu­efna­neyslu og fjöldi fjöl­skyldna glímir nú við harðan veru­leika tengdum þessum heimi. Við svörum þörf­inni með opnun neyð­ar­at­hvarfs, stofnun og rekstri úti­deildar og þjón­ustu­mið­stöðvar fyrir ung­menni í vímu­efna­vanda og aðstand­endur þeirra.“

Athygli vekur að merki lög­reglu er að finna á aug­lýs­ing­unni, en sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er ekki um að ræða form­legt sam­starf á milli aðila. Lög­reglu­stjarnan hafi verið send Götu­smiðj­unni til birt­ingar á aug­lýs­ing­unni fyrir mis­skiln­ing.

Fjögur ár liðin frá riftun á samningi við Götusmiðjuna


Nú eru liðin fjögur ár síðan Barna­vernd­ar­stofa rifti þjón­ustu­samn­ingi við með­ferð­ar­heim­ilið Götu­smiðj­una í kjöl­far ásak­ana um að Guð­mundur Týr hefði haft í hót­unum við börn sem voru vistuð á heim­il­inu. Guð­mundur Týr stefndi síðar Braga Guð­brands­syni, for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu, fyrir meið­yrði. Tildrög mála­ferl­anna má rekja til frétta­við­tals við for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu þar sem hann sagði meðal ann­ars að sam­skipti Guð­mundar Týs við ung­ling­ana hefðu farið yfir vel­sæm­is­mörk og fram­ganga hans valdið van­líðan og óör­yggi. Þá sak­aði Bragi Guðmund Tý um að hafa hótað ung­mennum lík­ams­meið­ingum. Hér­aðs­dómur Reykja­víkur dæmdi síðar for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu til greiðslu miska­bóta og máls­kostn­aðar vegna ummæl­anna, auk þess að dæma þau dauð og ómerk, en Bragi tók ekki til varna í mál­inu.

Götu­smiðjan verður opnuð að nýju á föstu­dag­inn, en nú standa yfir fram­kvæmdir í nýrri þjón­ustu­mið­stöð sam­tak­anna við Stór­höfða. Samhliða opn­un­inni munu sam­tökin taka í gagnið sér­stakt neyð­ar­númer fyrir ung­menni í fíkni­efna­vanda, sem verður opið allan sól­ar­hring­inn. Samkvæmt frétt á mbl.is er ætl­unin með síma­núm­er­inu að taka á móti ung­lingum í fíkni­efna­vanda og veita þeim „fyrstu hjálp á göt­unni,“ eins og haft er eftir Guðmundi Tý í frétt­inni. Ung­lingar í vanda geta hringt í núm­erið, sem verður gjald­frjálst, og sam­tökin bjóð­ast þá til að sækja við­kom­andi á þar til gerðum bíl og flytja í þjón­ustu­mið­stöð­ina þar sem lög­reglu og barna­vernd­ar­yf­ir­völdum verður gert við­vart. Í annarri frétt á Press­unni er full­yrt að um sér­hæft með­ferð­ar­úr­ræði sé að ræða.

Leyfisskyld starfsemi án leyfa


Samkvæmt eft­ir­grennslan Kjarnans hefur Götu­smiðjan ekki sótt um leyfi fyrir starf­sem­inni hjá Barna­vernd­ar­yf­ir­völdum, það er síma­þjón­ust­unni eða rekst­urs þjón­ustu­mið­stöðvar og neyð­ar­at­hvarfs. Í 79. grein barna­vernd­ar­laga segir að vel­ferð­ar­ráðu­neytið beri ábyrgð á að til­tæk séu heim­ili og stofn­anir til að veita börnum í bráða­til­vikum mót­töku, til að tryggja öryggi þeirra vegna meintra afbrota eða alvar­legra hegð­un­ar­erf­ið­leika. Þá bera stjórn­völd ábyrgð á því að greina vanda barna sem talin eru þurfa sér­hæfða með­ferð, til að mynda vegna hegð­un­ar­erf­ið­leika, vímu­efna­neyslu eða meintra afbrota. Þá segir í barna­vernd­ar­lögum að Barna­vernd­ar­stofa, í umboði vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins, geti falið öðrum rekstur með­ferð­ar­úr­ræða á grund­velli þjón­ustu­samn­ings og þá njóti við­kom­andi fræðslu, leið­bein­ingar og almennan fag­legan stuðn­ing frá Barna­vernd­ar­stofu.

Barna­vernd­ar­stofa vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað, til að forð­ast mögu­legt van­hæfi við umfjöllun leyf­is­um­sókna vegna starf­semi Götu­smiðj­unnar. Lög­fræð­ingur stof­unnar stað­festi hins vegar við Kjarnann að þjón­usta sam­bæri­leg við þá sem Götu­smiðjan hyggst bjóða upp á, sé leyf­is­skyld starf­semi. Ekki sé heim­ilt að veita börnum mót­töku í bráða­til­vikum án samn­ings við Barna­vernd­ar­stofu.

Barna­vernd­ar­nefnd Reykja­víkur sinnir eft­ir­liti með þjón­ustu við börn og ung­linga í höf­uð­borg­inni lögum sam­kvæmt. Nefndin hefur ekki fengið neina kynn­ingu, hvorki form­lega né óform­lega, frá Götu­smiðj­unni um hvernig þjón­ust­unni sem sam­tökin hyggj­ast bjóða ung­mennum borg­ar­innar upp á verði háttað. Halldóra Dröfn Gunn­ars­dóttir, fram­kvæmda­stýra nefnd­ar­innar, furðar sig á því að Götu­smiðjan hafi ekki óskað eftir form­legu sam­starfi við barna­vernd­ar­yf­ir­völd og lög­reglu, í sam­tali við Kjarnann, og beinir þeirri spurn­ingu til for­eldra hvort þeim finn­ist við hæfi að sam­tök sem ekki hafi til­skylin leyfi sinni börnum þeirra með þessum hætti.

Telur sig ekki þurfa leyfi fyrir símaþjónustu


Í sam­tali við Kjarnann full­yrðir for­stöðu­maður Götu­smiðj­unnar að síma­þjón­ustan, það er að sækja ung­linga í vímu­efna­vanda og færa þá öruggt skjól, sé ekki leyf­is­skyld starf­semi. Lögreglu og barna­vernd­ar­yf­ir­völdum verði alltaf gert við­vart, og hjá sam­tök­unum vinni fag­fólk sem muni sækja ung­mennin og sinna, til að mynda vímu­efna­ráð­gjafar og félags­fræð­ingar og annað menntað fag­fólk. Guð­mundur Týr hyggst hins vegar sækja um leyfi hjá barna­vernd­ar­fyr­ir­völdum fyrir starf­semi neyð­ar­at­hvarfs, þegar því verði hleypt af stokk­unum.

„Ég er alveg til­bú­inn að sækja um öll þau leyfi sem til þarf, en þarf maður að sækja um leyfi til að sinna borg­ara­legri skyldu sinni? Það er alltaf skárri kostur að koma í Götu­smiðj­una en að sofa á göt­unni, þannig að ég skil ekki að fólk sé að agn­ú­ast út í þetta. Er skárri kostur að þau séu á göt­unni og selji sig fyrir nátt­stað?“ Segir Guð­mundur Týr í sam­tali við Kjarnann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár