Pæling dagsins: Hvað býr að baki uppstokkuninni hjá Borgun?

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Það hefur ekki farið fram­hjá neinum að nú er farin af stað upp­stokkun á eign­ar­haldi greiðslu­korta­fyr­ir­tækj­anna, Valitors, Borgunar og Kredit­korts. Ef allt gengur eftir eins og nú er útlit fyrir, þá mun Arion banki eiga Valitor, Íslands­banki á 62 pró­sent í Borgun á móti Eign­ar­halds­fé­lagi Borgunar slf. og síðan á Íslands­banki Kredit­kort. Það sem hér vekur nokkra athygli eign Eign­ar­halds­fé­lags­ins Borgunar slf, sem hópur fjár­festa á, en Stálskip er þeirra stærsti ein­staki eig­andi stærsta flokks hluta­bréfa félags­ins, B flokks, með 29,43 pró­sent hlut. Arion banki og Íslands­banki eru ann­ars alls­ráð­andi. Nákvæma útlistun á eig­enda­hópnum má sjá í frétta­skýr­ingu Kjarnans. Hvað býr að baki þessum við­skiptum Eign­ar­halds­fé­lags Borgunar slf.? Af hverju er þessi útvaldi hópur fjár­festa að kaupa þennan hlut, og á 31,2 pró­sent eign­ar­hlut á móti Íslands­banka? Er Íslands­banki nokkuð á bak við þennan hóp? Varla getur það verið, því ann­ars yrði stefnu­breyt­ing bank­ans frá því á dög­unum, þegar öllum við­skiptum bank­ans við VISA og Valitor var hætt, og þau flutt til Borgunar, gerð tor­tryggi­leg. Og færu aug­ljós­lega gegn sam­keppn­is­sjón­ar­mið­unum sem hafa verið til­greind sem ástæða þess­ara við­skipta. Það verður for­vitni­legt að fylgj­ast með upp­stokk­un­inni og hvernig úr henni spil­ast á næstu miss­erum...

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár