Trivial Pursuit kemur ekki aftur út á Íslandi

Spurn­inga­spilið vin­sæla Trivial Pursuit mun að öllum lík­indum ekki koma aftur út á Íslandi. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans er ein­fald­lega of dýrt að gefa spilið út hér á landi sökum fólks­fæðar. Ný útgáfa spils­ins ein­fald­lega borgar sig ekki.

Trivial Pursuit hefur und­an­farna ára­tugi verið eitt vin­sælasta fjöl­skyldu­spil á Íslandi. Það hefur verið gefið nokkrum sinnum út á íslensku en síð­asta útgáfan kom á seinni hluta síð­asta ára­tugs.

[quote font="0" align="right"]Árið 2004 höfðu nærri 88 milljón ein­tök undir vöru­merk­inu Trivial Pursuit verið seld í 26 löndum og á 17 tungu­málum.[/quote]

Árið 2008 eign­að­ist banda­ríski leikj­aris­inn Hasbro öll útgáfu­rétt­indi að spil­inu en síðan hefur það ekki komið út hér á landi. Árið 2004 höfðu nærri 88 milljón ein­tök undir vöru­merk­inu Trivial Pursuit verið seld í 26 löndum og á 17 tungu­málum. Spilið kom fyrst út árið 1982 þegar tveir kanadískir fjöl­miðla­menn uppgvöt­uðu að ein­hverjir bók­stafir höfðu týnst úr Scrabble-spil­inu þeirra svo þeir ákváðu að búa til nýjan leik.

Hasbro hefur hins vegar staðið að staf­rænni útgáfu Trivial Pursuit á vefnum. Slík útgáfa hefur hins vegar ekki verið til á íslensku. Auk staf­rænu útgáf­unnar hafa þema­tengdar útgáfur verið gerðar; þar eru spurn­ing­arnar ein­göngu úr sér­stökum efn­is­flokkum eins og fót­bolta, dæg­ur­málum, kvik­myndum og þess háttar.

Ítarlega er fjallað um Trivial Pursuit og fleiri borð­spil í Þætti um kúl hluti í Hlað­varpi Kjarnans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár