Forsætisráðherra friðlýsir Nasa - vonar að þar verði tónleikar

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra hefur frið­lýst tón­leika­stað­inn Nasa við Aust­ur­völl. Frá þessu var greint í fréttum Stöðvar 2 í kvöld, og tón­list­ar­mað­ur­inn Páll Óskar Hjálmtýs­son, sem lengi hefur barist fyrir því að Nasa fái að lifa áfram sem tón­leika­staður, fagnar þessu sér­stak­lega á Facebook síðu sinni og birtir bréfið frá for­sæt­is­ráð­herra þessu til stað­fest­ingar. Sig­mundur Davíð von­ast til þess að sal­ur­inn verði áfram nýttur til þess að halda tón­leika.




Í frið­lýs­ing­unni segir að ekki megi hrófla við upp­runa­legum inn­rétt­ingum, innviðum eða skipu­lagi á rými sal­ar­ins eins og hann er í dag. Áformað er að reisa hótel en borg­ar­yf­ir­völd telja ekki að frið­lýs­ingin þurfi að koma í veg fyrir það. Málið verður þó skoðað með borg­ar­lög­manni á næstu dögum, að því er fram kom í frétt Stöðvar 2.

„Ég vona svo sann­ar­lega að þetta sé ávísun á það að Nasa verði áfram tón­leika­staður. Það er nóg pláss fyrir fleiri tón­leika­staði í mið­borg Reykja­víkur, af þess­ari gerð, af þess­ari stærð. Það er ekk­ert sem kemur í stað­inn fyrir Nasa,“ sagði Páll Óskar í sam­tali við Stöð 2.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár