Menntunarstig þjóðarinnar hækkar - 58.700 með háskólapróf

Árið 2013 höfðu 45.400 manns á aldr­inum 25-64 ára ein­göngu lokið grunn­menntun, þ.e. styttra námi en fram­halds­skóla­stigi, sam­kvæmt nið­ur­stöðum úr Vinnu­mark­aðs­rann­sókn Hagstofu Íslands. Það eru 27,8% íbúa og en hlut­fallið hefur farið lækk­andi á und­an­förnum árum, og var það 34,4% árið 2003, segir í til­kynn­ingu frá Hag­stof­unni vegna þessa. Mennt­un­ar­stig þjóð­ar­innar hefur því hækkað nokkuð hratt.

Þegar litið er á fjölda­tölur hefur íbúum með grunn­menntun fækkað um 3.800 frá árinu 2003 og um 1.700 frá árinu 2012. „Þá höfðu 36,1% íbúa mest lokið starfs- og fram­halds­menntun, þ.e. lokið námi á fram­halds­skóla­stigi sem er a.m.k. tvö ár að lengd eða lokið námi á við­bót­ar­stigi, eða 58.900 manns,“ segir til­kynn­ingu Hag­stof­unnar.

Álíka margir, 58.700 manns, höfðu lokið háskóla­námi; 36,0% íbúa á Íslandi á þessu ald­urs­bili. Háskóla­mennt­uðum hefur fjölgað um 19.400 frá árinu 2003, þegar þeir voru 27,5% íbúa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár