Almenningshlaupanefnd gagnrýnir framkvæmd Reykjavíkurmaraþons

Í ályktun sem Almenn­ings­hlaupa­nefnd Frjáls­í­þrótta­sam­bands Íslands (FRÍ) hefur sent stjórn sam­bands­ins, kemur fram gagn­rýni á fram­kvæmd Reykja­vík­ur­mara­þons­ins. Málið má rekja til kæru hlauparans Péturs Sturla Bjarna­sonar sem kærði Arnar Pét­urs­son, Íslands­meist­ara karla í mara­þoni, fyrir meint svindl í Reykja­vík­ur­mara­þon­inu sem fram fór 23. ágúst síð­ast­lið­inn.

Pétur Sturla kærði úrslit hlaups­ins til yfir­dóm­nefndar Reykja­vík­ur­mara­þons­ins, þar sem hann sak­aði Arnar um að hafa svindlað með því að njóta lið­sinnis tveggja hjól­reiða­manna í hlaup­inu, sem hafi hjólað með honum og hvatt hann áfram. Í 10. grein reglna Reykja­vík­ur­mara­þons­ins segir: „Hlaupa­brautin er ein­göngu ætluð kepp­endum. Ekki er heim­ilt að fylgja hlaup­urum gang­andi, hlaup­andi, á hjóli eða öðrum far­ar­tækjum (und­an­þága fyrir fylgd­ar­menn fatl­aðra). Það er á ábyrgð þátt­tak­enda að vísa frá þeim sem fylgja.“ Þá segir í 18. grein regln­anna: „Brot á ofan­greindum reglum ógilda þátt­töku­rétt í hlaup­inu.“

[caption id="attachment_9676" align="aligncenter" width="638"] Ein af þeim ljós­myndum sem lá til grund­vallar kæru máls­ins. Hér má sjá hjól­reiða­menn hjóla á undan Arnari Pét­urs­syni.[/caption]

Yfirdómnefnd viðurkenndi brot á reglum, en aðhafðist ekkert


Yfir­dóm­nefndin við­ur­kenndi í nið­ur­stöðu sinni að hjól­reiða­menn hefðu vissu­lega fylgt Arnari eftir þrjá fjórðu hluta hlaupa­leið­ar­innar, sem hafi verið óheim­ilt sam­kvæmt reglum Reykja­vík­ur­mara­þons­ins. Dóm­nefnd­inni þótti engu að síður ósannað að Arnar hafi notið aðstoðar hjól­reiða­mann­anna og vís­aði kæru máls­ins frá. Í nið­ur­stöðu dóm­nefnd­ar­innar segir: „Svo virð­ist sem fylgd á hjólum sé atriði, sem stjórn­endur Reykja­vík­ur­mara­þons þurfi að taka á í fram­tíð­inni. […] Það er álit yfir­dóm­nefndar að reglur hlaups­ins mætti birta með skýr­ari hætti m.a. í leik­skrá hlaups­ins ásamt því að vara um að brot á þeim geti leitt til brott­vís­unar úr hlaup­inu.“

Nið­ur­stöðu yfir­dóm­nefndar var áfrýjað til dóm­stóls ÍSÍ. Íþrótta­banda­lag Reykja­víkur, sem ann­ast fram­kvæmd Reykja­vík­ur­mara­þons­ins, skil­aði inn grein­ar­gerð til dóm­stóls­ins fyrir hönd yfir­dóm­nefndar. Dómstóll ÍSÍ stað­festi síðar nið­ur­stöðu yfir­dóm­nefndar Reykja­vík­ur­mara­þons­ins, ekki þótti sannað að þeir sem hjól­uðu með Arnari hafi veitt honum aðstoð.

Nið­ur­stöðu dóm­stóls ÍSÍ var áfrýjað til áfrýj­un­ar­dóm­stóls ÍSÍ, sem tók málið ekki til efn­is­legrar með­ferðar sökum form­galla á kærunni sem send var dóm­stóli ÍSÍ. Það er athygl­is­vert fyrir þær sakir að dóm­stóll ÍSÍ tók málið til efn­is­legrar með­ferðar þrátt fyrir ann­marka á kæru máls­ins.

Taka þarf af öll tvímæli um hvaða reglur gilda


Í áður­nefndri ályktun Almenn­ings­hlaupa­nefndar FRÍ segir að sam­bandið hafi lög­sögu yfir götu­hlaupum, sem þurfi að kynna betur meðal hlaupa­hald­ara og þátt­tak­enda. Þegar fram fari Íslands­meist­ar­mót í götu­hlaupum skuli fara eftir reglum FRÍ um fram­kvæmd þeirra, sem byggja eigi á alþjóð­legum reglum um meist­ara­mót í götu­hlaupum. Þar er til að mynda skýrt kveðið á um blátt bann við hraða­stjórnun.

Þá segir í álykt­un­inni að FRÍ hafi engu að síður enga aðkomu haft að fram­kvæmd Reykja­vík­ur­mara­þons­ins eða dóm­gæslu í hlaup­inu. Þá hafi hlaup­hald­arar Reykja­vík­ur­mara­þons kynnt sínar eigin reglur í hlaup­inu, þar sem ekki var vísað sér­stak­lega í reglur FRÍ. Í ályktun Almenn­ings­hlaupa­nefndar segir enn­fremur: „Taka þarf af öll tví­mæli um hvaða reglum fara eigi eftir við fram­kvæmd meist­ara­móta í götu­hlaupum. Nefndin leggur til að FRÍ skipi yfir­dóm­ara þegar um Íslands­meist­ara­mót í götu­hlaupum er að ræða.“

Að lokum gerir Almenn­ings­hlaupa­nefnd athuga­semd við kæru­með­ferð máls­ins. Kæran hafi aldrei komið til afgreiðslu hjá FRÍ, sem hefði átt að taka málið til afgreiðslu, þar sem FRÍ hafi lög­sögu yfir Íslands­meist­ara­keppni í götu­hlaupum, áður en það fór til dóm­stóls ÍSÍ: Mik­il­vægt sé að far­vegur kæru­mála sé skýr.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár