Eiríkur Tómasson ætlar ekki að tjá sig um ummæli Jóns Steinars

Jón Steinar Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­ari, bar full­trúa rétt­ar­fars­nefndar þungum sökum í við­tali í sjón­varps­þætt­inum Eyjunni, í umsjón Björns Inga Hrafns­sonar, í gær.

Jón Steinar nefndi Eirík Tómasson, núver­andi dóm­ara við Hæsta­rétt og for­mann rétt­ar­fars­nefndar, sér­stak­lega á nafn og sagði frá því hvernig hann og aðrir nefnd­ar­menn hefðu tryllst þegar Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, þáver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, skip­aði þriggja manna nefnd til að skrifa frum­varp að nýjum dóm­stóla­lögum. Það hefði ekki fallið í kramið hjá rétt­ar­fars­nefnd­inni, sem hefði litið svo á að ráð­herra hefði snið­gengið þá við skipun nefnd­ar­innar.

Í við­tal­inu sagði Jón Steinar: „Þeir urðu alveg trylltir yfir því, í ein­hverri reiði yfir því að þeim skyldi ekki vera falið að gera þetta. Og ég hef alveg spurnir af því að for­mað­ur­inn í rétt­ar­fars­nefnd og rit­ari hennar, Benedikt Bogason, þeir mættu í ráðu­neytið og höfðu bara hátt. Og til dæmis á fundi þess­arar nefndar veit ég, og jafn­vel á fundi ráð­herr­ans sjálfs, leyndi sér ekki að þeir töldu að fram­hjá sér hefði verið gengið.“

Í sam­tali við Kjarnann kveðst Eiríkur Tómasson ekki ætla að tjá sig um ummæli Jóns Steinars. „Ég ætla ekki að fara að standa í orða­hnipp­ingum við Jón Steinar.“

Eiríkur segir að rétt­ar­fars­nefnd hafi mætt á fund með inn­an­rík­is­ráð­herra í eitt skipti síð­asta sumar, þar sem mál sem nefndin hafði til með­ferðar voru til umræðu. Þar hafi hug­myndin um milli­dóms­stig verið rædd, en nefndin hafði þá fjallað tölu­vert um hvernig haga ætti til­högun milli­dóms­stigs. Eiríkur ætlar ekki að tjá sig að öðru leyti um hvað var rætt á fund­inum með ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár