Eiður Smári á leið til Bolton - samningar á lokastigum

Eiður Smári Guðjohn­sen, marka­hæsti leik­maður íslenska lands­liðs­ins frá upp­hafi, er á leið til Bolton Wanderers, félags­ins sem hann spil­aði með á árunum 1998 til 2000. Arnór Guðjohn­sen, faðir Eið Smára, sagði sam­tali við Kjarnann fyrir stundu að samn­ingar væru á loka­stigum en þó ekki form­lega frá­gengnir á þess­ari stundu. Líkur eru á því að þeir klárist í dag.

Eiður Smári hefur æft með félag­inu að und­an­förnu en það situr sem stendur í 18. sæti Championship-deild­ar­innar, það er næst efstu deildar. Það er með 21 stig eftir 19 leiki, eða 14 stigum á eftir topp­liði Derby.

Eiður Smári hefur verið án félags að und­an­förnu, og mun að öllum lík­indum semja við Bolton til skamms tíma, í það minnsta til þess að byrja með.

Hér að neðan má finna frá­sögn sem rifjuð var upp í pæl­ingu dags­ins, í dag­legu frétta­bréfi Kjarnans, þegar fréttir af því spurð­ust út að Eiður Smári væri að æfa með Bolton.

(Kjarninn vill benda les­endum sínum á skemmti­lega lýs­ingu á því þegar Eiður Smári fékk samn­ing hjá Bolton, í ævi­sögu Guðna Bergs­sonar, fyrrum liðs­fé­laga Eiðs Smára. Í stuttu máli mætti Eiður Smári alltof þungur, eftir erfið meiðsli hjá PSV og stuttan spila­tíma hjá KR, á æfingu hjá Bolton og spil­aði léttan æfinga­bolta á lít­inn völl, þá tæp­lega tví­tugur. Guðni segir að Eiður Smári hafi, þrátt fyrir afleitt lík­am­legt form, verið miklu betri en allir aðrir í fót­bolta, og það hafi verið ljóst eftir hálf­tíma að hann var að fara fá samn­ing! Colin Todd, þáver­andi stjóri liðs­ins, þurfti ekki lengri tíma…)

Hér með­fylgj­andi má sjá fræg­asta mark Eiðs Smára fyrir Bolton, þegar hann prjón­aði sig í gegnum vörn Wimbledon í ensku bik­ar­keppn­inni.

https://www.youtube.com/watch?v=LxhMXgW70nM

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár