Aðalmeðferð í fjárdráttarmáli á hendur Hannesi komin á dagskrá

Aðal­með­ferð í máli Sérstaks sak­sókn­ara á hendur Hannesi Smára­syni, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­manni FL Group, fer fram í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í lok jan­úar. Hannesi var birt ákæran í mál­inu í nóv­em­ber á síð­asta ári, en honum er gefið að hafa dregið sér hátt í þrjá millj­arða króna af reikn­ingi FL Group, á meðan hann var stjórn­ar­for­maður félags­ins. Fénu hafi hann svo ráð­stafað til Fons eign­ar­halds­fé­lags, í eigu Pálma Har­alds­sonar, í tengslum við umdeild við­skipti með flug­fé­lagið Sterling.

Þá segir í ákærunni að Hannes hafi gefið fyr­ir­mæli um milli­færsl­una án vit­undar eða sam­þykkis for­stjóra, fjár­mála­stjóra eða ann­arra í stjórn félags­ins. Hannes skil­aði pen­ing­unum aftur tveimur mán­uðum síðar, eftir þrýst­ing meðal ann­ars frá þáver­andi for­stjóra félags­ins, Ragn­hildi Geirs­dóttur, sem síðar sagði starfi sínu lausu eins og frægt er orðið. Til vara er Hannes Smárason ákærður fyrir umboðs­svik, fyrir að mis­nota aðstöðu sína sem pró­kúru­hafi og valda FL Group veru­legri fjár­tjóns­hættu.

Kjarninn fjall­aði ítar­lega um við­skiptaflétt­una í októ­ber­mán­uði í fyrra.

Málið var þing­fest í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur 14. nóv­em­ber í fyrra. Hér­aðs­dómur féllst á frá­vís­un­ar­kröfu Hannesar í mars, en Hæsti­réttur Íslands ógilti svo frá­vís­un­ina í apr­íl­mán­uði síð­ast­liðnum. Boðað var til þing­halds í hér­aðs­dómi í maí, en verj­anda Hannesar var þá veittur frestur fram í októ­ber til að skila grein­ar­gerð í mál­inu, sem hann ákvað svo að gera ekki. Þá var ákveðið að setja aðal­með­ferð máls­ins á dag­skrá, sem mun að óbreyttu fara fram 28. jan­úar næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár