Stjórn RÚV skorar á Alþingi að lækka ekki útvarpsgjaldið

„Stjórn Rík­is­út­varps­ins beinir þeirri ein­dregnu áskorun til Alþingis að það standi vörð um Rík­is­út­varpið með því að falla frá fyr­ir­hug­aðri lækkun á útvarps­gjaldi.“ Svo hljóðar nið­ur­lag áskor­unar stjórnar RÚV til Alþingis, en áskor­unin hefur verið send fjöl­miðlum og þing­mönnum.

Þar segir að á und­an­förnum árum hafi fram­lög til RÚV verið ítrekað skorin niður, sam­hliða hafi verið hag­rætt mikið í starf­semi RÚV og dregið úr þjón­ustu. Samkvæmt sjálf­stæðri úttekt á fjár­málum félags­ins, sem stjórn RÚV og nýir stjórn­endur létu fram­kvæma síð­ast­liðið vor, sé félagið yfir­skuld­sett og stærstur hluti skuld­anna séu gamlar líf­eyr­is­sjóðs­skuld­bind­ingar. Þá blasi við að tekjur dugi ekki fyrir þeirri þjón­ustu sem félagið veiti í sam­ræmi við útvarps­lög og þjón­ustu­samn­ing milli Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins og Rík­is­út­varps­ins.

Óskert og óbreytt útvarpsgjald myndi standa undir rekstri RÚV


Stjórn RÚV mót­mælir harð­lega áformum stjórn­valda um að lækka útvarps­gjaldið, og segir að óbreytt og óskert útvarps­gjald myndi standa undir rekstri félags­ins til fram­tíðar. Samhliða óskum RÚV um að fá útvarps­gjaldið óskert í sinn hlut, hefur stjórn RÚV og nýir stjórn­endur unnið að sölu útvarps­húss­ins við Efsta­leiti og lóðar félags­ins við húsið. Magnús Geir Þórð­ar­son, útvarps­stjóri, hefur sagt í sam­tali við Kjarnann að von­ast sé til að eigna­salan, fáist ásætt­an­legt verð fyrir, muni leysa upp­safn­aðan skulda­vanda félags­ins.

Þá segir í áskorun stjórnar RÚV: „Nú stendur til að útvarps­gjaldið lækki um ára­mótin úr 19.400 kr niður í 17.800 kr og svo að útvarps­gjaldið lækki aftur að ári niður í 16.400 kr. Gangi þessar fyr­ir­ætl­anir eftir blasir við stór­felld breyt­ing á hlut­verki, þjón­ustu og starf­semi Rík­is­út­varps­ins með stór­tæk­ari nið­ur­skurð­ar­að­gerðum en áður hafa sést hjá félag­inu. Augljóst má vera að sú þjón­usta sem Rík­is­út­varpið veitir tæki stakka­skiptum við þessa breyt­ingu með sam­drætti á öllum sviðum. Þá er ljóst að áætl­anir um úrbætur á til­teknum þáttum í starf­sem­inni eru ófram­kvæm­an­legar en nýir stjórn­endur og stjórn hafa hug á að efla þjón­ustu við lands­byggð­ina, bjarga efni í Gull­kistu Rík­is­út­varps­ins og gera aðgengi­legt þjóð­inni, efla fram­boð á vönd­uðu barna­efni á íslensku, leggja aukna áherslu á inn­lenda fram­leiðslu og bæta dreifi­kerfið um land allt.“

Þá und­ir­strikar stjórn RÚV mik­il­vægi félags­ins sem ein mik­il­væg­asta menn­ingar- og lýð­ræð­is­stofnun þjóð­ar­innar. „Ef það er vilji Alþingis að gjör­breyta hlut­verki Rík­is­út­varps­ins og skyldum, þá er eðli­legt að fram fari umræða og þá með til­heyr­andi breyt­ingum á útvarps­lögum áður en tekin er ákvörðun um að lækka útvarps­gjald.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár