Kjarninn með næst minnsta vantraustið á eftir fréttamiðlum RÚV

Í nýrri skoð­ana­könnun MMR á trausti til fjöl­miðla, sögð­ust 14,8 pró­sent aðspurðra bera lítið traust til Kjarnans, það er næst minnsta van­traustið á eftir Frétta­stofu RÚV. Samkvæmt nið­ur­stöðum könn­un­ar­inar báru 10,4 pró­sent þeirra sem tóku afstöðu lítið traust til Frétta­stofu RÚV. Mesta van­traustið var í garð DV, en 57,6 pró­sent aðspurðra sögð­ust bera lítið traust til blaðs­ins.

Frétta­stofa RÚV er enn í sér­flokki hvað varðar traust almenn­ings til fjöl­miðla, en 70,6 pró­sent aðspurðra sögð­ust bera mikið traust til rík­is­fjöl­mið­ils­ins, og 64,5 pró­sent sögð­ust bera mikið traust til ruv.is. Mbl.is situr í þriðja sæti með 46,7 pró­senta traust, og 23,9 pró­senta van­traust. Traust til mbl.is hefur dreg­ist nokkuð saman frá því í des­em­ber 2008, þegar 64 pró­sent aðspurðra sögð­ust bera mikið traust til net­frétta­mið­ils­ins. Þá sögð­ust 27 pró­sent aðspurðra bera mikið traust til Kjarnans í nýj­ustu könnun MMR.

[caption id="attachment_13356" align="aligncenter" width="655"] Nið­ur­stöður MMR. Samtals tóku 97,2 pró­sent afstöðu til spurn­ing­ar­innar.[/caption]

Traust til helstu prentmiðla dregst saman, traust til DV eykst


Þeir prent­miðlar sem nutu mest trausts meðal almenn­ings voru Morg­un­blaðið og Frétta­blaðið. Af þeim sem tóku afstöðu sögð­ust 40,6 pró­sent bera mikið traust til Morg­un­blaðs­ins nú, borið saman við við 46,4 pró­sent í nóv­em­ber 2013. Þá sögð­ust 34,9 pró­sent bera mikið traust til Frétta­blaðs­ins nú, sam­an­borið við 39,2 pró­sent í fyrra. Hlut­falls­lega fleiri sögð­ust bera lítið traust til Morg­un­blaðs­ins en til Frétta­blaðs­ins. Af þeim sem tóku afstöðu sögð­ust 30,2 pró­sent bera lítið traust til Morg­un­blaðs­ins, á meðan 22,9 pró­sent sögð­ust bera lítið traust til Frétta­blaðs­ins.

Traust til frétta­miðla DV hefur auk­ist frá því í nóv­em­ber í fyrra. Af þeim sem tóku afstöðu nú sögð­ust 14,5 pró­sent bera mikið traust til DV, borið saman við 10 pró­sent í fyrra. Þá sögð­ust 13,2 pró­sent bera mikið traust til dv.is nú, sam­an­borið við 9,1 pró­sent í nóv­em­ber 2013.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár