Tíðari fundir í launadeilu lækna og stjórnvalda - fundað í Karphúsinu

„Það hafa verið tíð­ari fundir að und­an­förnu, þrír fundir í síð­ustu viku og síðan hefur verið boðað til fundar í Karp­hús­inu í dag, en það liggur ekk­ert til­boð á borð­inu ennþá,“ segir Þorbjörn Jónsson, for­maður Lækna­fé­lags Íslands. Ekkert til­boð hefur komið fram í launa­deilu Lækna­fé­lags Íslands og stjórn­valda en verk­falls­að­gerðir lækna hafa nú staðið yfir í ríf­lega mánuð.

Aðgerð­irnar hafa haft alvar­legar og víð­tækar afleið­ingar fyrir fjölda fólks, en vel á fjórða hund­rað aðgerðum hefur verið frestað vegna þeirra, og þjón­ustu­stig verið skert. Aðgerð­irnar standa út næstu viku, en í dag hefst atkvæða­greiðsla þar sem læknar taka afstöðu til þess hvort gripið verði til frek­ari verk­falls­að­gerða eftir ára­mót til að knýja á um launa­hækkun. Félags­menn sem hafa um atkvæð­is­rétt eru um 900 tals­ins.

[caption id="attachment_13347" align="alignleft" width="174"] Þorbjörn Jónsson, for­maður Lækna­fé­lags Íslands.[/caption]

Þorbjörn seg­ist ekk­ert vilja tjá sig um kröfur lækna, en það verði að vera veru­leg hækkun á launum sem eigi sér stað núna. Aðstæð­urnar í stétt­inni séu þannig að það sé bein­línis nauð­syn­legt. „Það er grafal­var­leg staða uppi í stétt­inni vegna lækna­skorts og þeirrar stöðu, að ungir læknar skila sér ekki heim úr námi eða vinnu erlendis. Það verður að sporna við þess­ari þróun og hluti af því er að hækka launin veru­lega á þessum tíma­punkti.“

Aðspurður um hvort læknar séu að gera kröfu um mun hærri launa­hækk­anir en aðrar stéttir, og hvort það geti haft alvar­legar afleið­ingar fyrir verð­lags­þróun og kom­andi kjara­samn­inga, segir hann þurfa að skoða málin í réttu sam­hengi. „Í fyrsta lagi hefur almenn­ingur á Íslandi sýnt kröfum okkar um veru­lega launa­hækkun mik­inn skiln­ing, sem hefur end­ur­tekið verið stað­festur í könn­unum. Veru­legar kjara­bætur eru nauð­syn­legar stétt­inni og einnig fyrir heil­brigð­is­þjón­ust­una í heild sinni. Þannig verður að horfa á þetta mál, og á þeim for­sendum eru við í þessum við­ræðum og aðgerðum núna,“ segir Þorbjörn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár