Ferðaþjónustan orðin stærsti þjónustuliður í bæði inn- og útflutningi

Ferða­þjón­ustan er í fyrsta skipti orð­inn stærsti þjón­ustu­lið­ur­inn í bæði inn- og útflutn­ingi, en afgangur af henni nemur 37,4 millj­örðum króna á þriðja árs­fjórð­ungi árs­ins 2014. Útflutn­ingur hennar nam tæp­lega 67 millj­örðum króna, og inn­flutn­ingur 29,5 millj­örðum króna. Afgangur vegna ferða­þjón­ustu nam röskum 27 millj­örðum króna á sama árs­fjórð­ungi í fyrra.

Þetta kemur fram í frétt frá Hag­stof­unni, um þjón­ustu­við­skipti við útlönd á yfir­stand­andi ári.

Heild­ar­út­flutn­ingur á þjón­ustu á þriðja árs­fjórð­ungi var, sam­kvæmt bráða­birgða­tölum, 173,3 millj­arðar króna, en inn­flutn­ingur á þjón­ustu 93,1 millj­arður. Af þessum völdum var þjón­ustu­jöfn­uður við útlönd því jákvæður um 80,2 millj­arða króna á tíma­bil­inu, en hann var jákvæður um 69,9 millj­arða á sama tíma í fyrra á gengi hvors árs.

Í frétt Hag­stof­unnar kemur fram að mestur afgangur hafi orðið af sam­göngu- og flutn­inga­þjón­ustu eða 47,4 millj­arðar króna. Útflutn­ingur þeirra nam 64,9 millj­örðum og inn­flutn­ingur 17,5 millj­örðum króna.

Önnur inn­flut við­skipta­þjón­usta nam 27,5 millj­örðum og útflutn­ingur 10,3 millj­örðum króna á þriðja árs­fjórð­ungi. Halli var því mestur af þeirri þjón­ustu, eða 17,3 millj­arðar króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár