Bibbi bloggar úr Evróputúr Skálmaldar: Varsjá

Skálmöld er nú á tæp­lega 7 vikna túr um Evrópu. Dagarnir eru afskap­lega við­burða­ríkir og aðstæður oft afskap­lega skemmti­legar. Snæbjörn, bassa­leik­ari og texta­höf­undur sveit­ar­innar, heldur úti dag­legu bloggi á vef Kjarnans þar sem hann lýsir hinu goð­sagna­kennda rokk­ara­lífi. Táfýla, blóð, sviti, tár og auð­vitað rokk & ról beint í æð.

Pólland. Pólland er fyr­ir­heitna landið. Það var vissu­lega gaman í gær, og reyndar var það hátt í að vera það besta sem ég hef gert með Skálmöld. Dagurinn í dag var enn betri. En bíðum aðeins með það. Tölum aðeins um hægðir míns besta vinar, Björg­vins Sig­urðs­sonar.

[caption id="attachment_13322" align="alignnone" width="2981"] Það mæðir mikið á söngv­ar­anum, Böbba, á tón­leikum Skálmaldar, segir Bibbi.[/caption]

Böbbi var að kúka á sig í allan dag. Þetta er nákvæm­lega tím­inn þar sem hlutir gefa sig á svona túrum. Veikindi, slapp­leiki og almenn óeirð grafa um sig, allir dagar eins, nýja­brumið horfið og Leifs­stöð í óra­fjar­lægð. Við höldum þó stemn­ing­unni og dag­arnir eru vissu­lega skemmti­legir. En já, Böbbi er örlítið skrýt­inn í mag­anum, og búinn að kúka oft í dag. Svona vondum kúk og mis­kunn­ar­lausum. Hljóðin sem þeir for­söngv­arar okkar fram­leiða eru ekki búin til af létt­leika. Böbbi og Baldur búa til hljóð sem ómögu­legt er að pródúsera nema að allur lík­am­inn sé með. Oft og tíðum eftir gigg eru þeir ekki aðeins löð­ur­sveittir heldur líka alger­lega orku­lausir og ger­sam­lega tæmdir. Eftir mestu átökin sér maður blóð­hlaupin augu og sljóan svip þegar maður faðmar þá eftir gott dags­verk. Við leggjum jú allir hart að okkur en þeirra hlut­verk vega þyngra en okkar hinna, það er víst bara þannig. Ég hef sjálfur for­sungið í alls­konar pródjektum og mest mæðir á mér í okkar ást­sælu hljóm­sveit Inn­vortis. Þar syng ég vissu­lega bara svona venju­lega og þarf ekki að öskra þessi lif­andis ósköp. En það er erfitt. Óskap­lega erfitt. Það er erf­ið­ara en nokkuð annað sem ég hef gert á sviði. Og nú er ég bara að tala um lík­am­lega þátt­inn. Til að búa til almenni­leg hljóð með rödd­inni þarf allur lík­am­inn að vera með og fyrir mig mæðir mest á mag­anum. Góð jarð­festa er klár nauð­syn en þunga­miðjan verður til um mann miðjan. Eitt erindi jafn­ast senni­lega á við eins og tíu maga­æf­ingar ef ég ætti að giska. Og já, það fer ekki vel saman við maga­kveisu.

Til að ég létti nú spenn­unni þá kúkaði Böbbi ekki á sig. En það mun­aði ekk­ert endi­lega mjög miklu. Hann hefur þá venju að spila í sund­skýlu, það er gam­alt trikk sem við not­uðum allir á íþrótta­ár­unum. Í dag fór hann í hreina brók inn­an­undir skýl­una, svona rétt til að hafa vaðið fyrir neðan sig. Til hans ham­ingju, en von­brigða okkar hinna, kom þó ekki til þess að hann kúkaði á sig. Þetta slapp allt saman fyrir horn og brókin lifir fram­yfir næsta þvott.

Og fyrst ég er byrj­aður skulum við tala aðeins meira um Böbba og kúk. Ég er í stuði.

Böbbi var síð­astur á sviðið í Köln fyrir nokkrum dögum. Þar var sal­ern­is­að­stöð­unni svo­lítið ábóta­vant bak­sviðs og svo fór að hann þurfti að hinkra helst til lengi til að gera sitt áður en við héldum á svið. Reyndar end­aði það svo að hann komst hvergi að en álp­að­ist inn á kol­myrkvað kvennakló­sett til að gera sitt. Þarna sat hann átta­villtur í myrkr­inu og heyrir sér til skelf­ingar að introið okkar er byrjað og þá eins og níu­tíu sek­úndur í fyrstu taln­ingu. Jú, hann náði að klára, klippa og klensa, en ég hef sjaldan séð hann koma eins víraðan í hóp­inn eins og þá. Hann fann gler­aug­unum sínum ein­hvern slembi­stað, los­aði úr vör­inni í plast­flösku sem eng­inn hefur von­andi sopið af eftir á, herti beltið og struns­aði á svið.

Já, það er ýmis­legt mann­legt og minna göf­ugt sem kemur upp bak við tjöldin. En aldrei skal það stoppa Skálmöld.

Ég var fullur þangað til sex í morgun, og það reyndar ofboðs­lega. Ég og Baldur stóðum vakt­ina hve best, spil­uðum popp í græj­unum og spjöll­uðum við Robert. Jón og Flex álp­uð­ust hingað fram annað slagið en ég játa að ég man engin smá­at­riði. Ég veit bara að rauð­víns­flaskan sem Rúss­arnir gáfu okkur í fyrra­dag er búin og ég skulda Þrása eins og lítra af Jack Daniels. Við stopp­uðum svo þarna um sex­leytið til að pissa og reykja. Ég man að ég datt úr skónum og gekk erf­ið­lega að kom­ast í hann aftur. Rútan var þá í eins og 15 metra fjar­lægð. Böbbi var þá milli­vakn­aður og að bursta tenn­urnar. Ég bað hann vin­sam­leg­ast um að sjá til þess að ég kæm­ist aftur til rútu. Sú ferð heppn­að­ist, en það var meira honum að þakka en mér. Svo fór að hann ýtti mér upp þrepin. Og svo fór ég víst í koju.

Ég vakn­aði um fjögur, óþunnur sem er mér óskilj­an­legt og er með öllu móti óverð­skuldað. Ég sá ekk­ert af Varsjá eins og gefur að skilja, aðeins bak­her­bergið og trjá­lund­inn hvar við lögðum rút­unum. Eins og í gær, sem verður svo aftur eins á morgun, spil­uðu þessi þrjú bönd á undan okkur og því var ekk­ert sánd­tékk. Við húrruð­umst svo bara á sviðið og línu­tékk­uðum, renndum pass­lega blint í sjó­inn en þó í full­kom­lega góðu skapi.

Giggið var gjöðveikt, okkar besta á túrnum og senni­lega okkar besta utan lands­stein­anna. Einhver sagði mér að þetta hefðu verið giska 1.300 manns og allt ætl­aði að fara af tein­unum. Við vorum líka góðir og Jón Geir alveg sér­stak­lega. Hann er vissu­lega besti trommari sem ég hef kynnst á ævinni en þegar hann á svona daga setur mann hljóðan. Að spila á bassa í hljóm­sveit þar sem trymb­ill­inn hagar sér svona, það eru for­rétt­indi og afskap­lega auð­veld atvinna. Lítið meira um það að segja svo sem, þetta var bara alger­lega geð­veikt.

Ég náði svo að drekka í mig svo­lít­inn kjark eftir á og við heilsuðum upp á pöp­ul­inn. Pólland. Hér er fólkið fal­legt og gott. Ég rúll­aði svo gegnum þvög­una rétt þegar Elu­veitie var að klára, skoð­aði bak­sviðið aðeins og fann mér Berlínar-bollu með flór­sykri. Það var vissu­lega ekki nóg og ég er glor­hungr­aður. Klukkan er 0.01 og við Flexi einir í rútu, utan við Robert sem sefur. Hinir eru senni­lega inni og enn að mingla. Þeir sam­ferða­menn mínir fóru í versl­un­ar­mið­stöð í dag, keyptu snjó­hvítt brauð, hnetu­smjör og sultu. Ég ætla að fá mér svo­leiðis áður en ég held til koju.

Á morgun spilum við síð­asta giggið í Póllandi. Ég man ekki fyrir mitt litla líf hvað borgin heitir, né hversu langt við þurfum að keyra. Ég vona bara að það verði jafn gaman að spila þar og síð­ustu tvö gigg.

Meist­ara­legt dags­ins: Besta gigg í heimi.

Sköll dags­ins: Hrár fiskur í mat­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár