Bibbi bloggar úr Evróputúr Skálmaldar: Kraká

Skálmöld er nú á tæp­lega 7 vikna túr um Evrópu. Dagarnir eru afskap­lega við­burða­ríkir og aðstæður oft afskap­lega skemmti­legar. Snæbjörn, bassa­leik­ari og texta­höf­undur sveit­ar­innar, heldur úti dag­legu bloggi á vef Kjarnans þar sem hann lýsir hinu goð­sagna­kennda rokk­ara­lífi. Táfýla, blóð, sviti, tár og auð­vitað rokk & ról beint í æð.

Pólland já. Við höfum spilað tvisvar áður hér í Kraká. Ég man ekki nákvæm­lega hvernig við­tökur við fengum þá en ég man að allt var frekar jákvætt. En það getur ekki verið að hlut­irnir hafi verið eins frá­bær­lega snilld­ar­legir og í dag. Hvílíkt gigg!

Ég kláraði Black Mirror í koj­unni í gærkveldi. Við náðum reyndar að verða svo­lítið fullir áður en að því kom en til­finn­ingin að skríða í krist­als­hreinu koj­una var jafn­vel yfir vænt­ingum. Við vorum þá reyndar í miðju stríði (þegar ég segi við þá meina ég Robert) við að sigr­ast á hand­ó­nýtum vega­köflum. Á köflum eru veg­irnir hér byggðir úr stein­hellum sem lúkka ekk­ert svo illa þegar maður horfir út um fram­rúð­una. Stað­reyndin er hins­vegar sú að þessar hellur rísa og síga á víxl og yfir­reiðin er væg­ast sagt ógeð. Þráinn full­yrti að hann hefði náð full­komnu þyngd­ar­leysi á ein­hverjum tíma hvar hann skutl­að­ist upp af dýn­unni. Þá var ég senni­lega löngu sofn­aður. Ég sef af mér allt sem er. Það er mín gjöf frá guð­unum.

Ég vakn­aði klukkan þrjú. Þá voru allir á bak og burt utan við Robert sem var kom­inn í hvíld­ina og svo Flex sem slæst við ein­hvern flensu­skít. Ég rusl­aði mér inn á tón­leika­stað­inn og fann þar litla bróður sem sagði mér að restin hefði haldið í bæj­ar­ferð til að skoða Kraká. Þetta er sum sé okkar þriðja heim­sókn hingað og í öll skiptin hafa ein­hverjir okkar farið niður í bæ. En aldrei ég. Ég geymi þetta fyrir ell­ina, að skoða Kraká. Eða neinei. Böbbi situr hér og les yfir öxl­ina á mér og bendir mér á að einu sinni höfum við víst verið hér sem túristar. Þá sáum við fyrstu útgáf­una af „The Big Four“ þar sem Metallica, Slayer, Megadeth og Anthrax leiddu saman hesta sína í fyrsta skipti. Þetta var árið 2010 segir hann mér. Þetta er ljóm­andi fal­leg borg, ég man það núna. Ég eyði ell­inni þá bara í annað.

Ég opn­aði inter­netið og reyndi að sinna því sem hægt var. Svaraði einu við­tali yfir netið og reyndi að ger­ast nyt­sam­legur. Þónokkrir hafa spurt mig út í hverju þetta net­leysi sæti og svarið við því er ein­falt: Á tón­leika­stöð­unum sem við spilum á er svo að segja alltaf netteng­ing. Og hún er oft­ast ljóm­andi ágæt. En svo hrúg­ast allt tón­leika­ferða­lagið inn á stað­inn, allir tengja eitt til þrjú tæki við ráter­inn og þá hrynur draslið. Þannig er maður lukku­legur með eins og klukku­tíma sam­band við netheima á dag og blóta jan­fhart og hinir fjöru­tíu að ekk­ert virki. Mitt fyrsta verk er yfir­leitt að hlaða upp bloggi gær­dags­ins, en það er yfir­leitt fremur auð­velt. Baldur baslar meira við að koma mynd­unum frá sér. Að sumu leyti er þetta mjög hollt. Heim­ur­inn er meira en það sem ger­ist online. Maður fattar það ekk­ert endi­lega fyrr en manni er mein­aður aðgangur.

Ein­hver­staðar í dag hittum við bræður á úkra­ínskan blaða­mann sem hafði mik­inn áhuga á Skálmöld og vissi heil­mikið. Skemmti­legur hálf­tími á spjalli við afskap­lega vel­heppn­aðan mann.

[caption id="attachment_13310" align="alignnone" width="3848"] Giggið í Kraká var sturlun, segir Bibbi.[/caption]

Strák­arnir skil­uðu sér í hús og fljót­lega eftir það hófust tón­leik­arnir. Þetta var fyrsta Póllands-giggið af þremur í röð og með á þessum legg eru þrjú auka­bönd. Eitt af þeim er í það minnsta hér­lenskt, annað er frá Rúss­landi en ég hef ekki hug­mynd um hið þriðja. Þetta hefur þó í för með sér að við fáum ekk­ert eig­in­legt sánd­tékk. Eftir þriðja band rusl­uðum við okkur upp á svið fyrir framan fullan sal og tókum hið svo­kall­aða línu­tékk. Þá er allt sett í sam­band en lítið annað gert en athugað hvort allt virki ekki alveg örugg­lega. Eftir það skutl­uð­umst við aðeins bak­sviðs og biðum eftir að introið byrj­aði.

Ég þarf nú samt að játa eitt. Það var mikil mann­mergð í bak­her­berg­inu svo ég ákvað að klæða mig úti í rútu. Senni­lega hefur það eitt­hvað með líf­erni und­an­far­inna daga og vikna að gera, en ég var ekki nema pass­lega vel stemmdur fyrir átökin. Og ég stóð ég einn í rút­unni hálf­ó­mögu­legur. Ég brá á það ráð að sulla svo­lítið úr Jack Daniels-flösk­unni hans Þrába í plast­glas, teygði mig í vítamín­glasið sem ég keypti á Leifs­stöð og not­aði þetta sem nesti. Ég veit ekki hvort af þessu tvennu virk­aði svona vel en ég varð alveg bæri­legur strax á eftir. En já, þetta fær mann aðeins til að hugsa. Umrætt tvennt á fastandi maga er ekki endi­lega til eft­ir­breytni. En já, virk­aði.

Og svo á svið. Þetta gigg var sturlun. Hrein and­skot­ans sturlun. Hér mætir fólk til að hafa gaman, svo mikið er víst. Frá fyrsta lagi voru allir andar lausir og stapp­fullur sal­ur­inn ger­sam­lega snar­klikk­aður. Ég man ekki eftir svona klikkun nema mögu­lega á Eistna­flugi. Og jújú, heima á Íslandi svo sem almennt. Við ættum að gera okkur grein fyrir því að Ísland getur af sér bæði bestu lista­menn og áhan­gendur í heimi. Svo ég gæti nú allrar sann­girni. En að öllu gamni slepptu, þetta gigg var ótrú­legt. Pyttir af öllum mögu­legum gerðum, gull­fal­legt fólk og heið­ar­leg gleði hvert sem litið var. Þetta var rooosalegt.

Eftir gigg spjöll­uðum við hell­ing við pöp­ul­inn. Hér býr fal­legt fólk með fal­legar skoð­anir sem gaman er að ræða. Ég á þónokkra pólska vini á Íslandi og þetta menta­lítet rímar alger­lega við þá meist­ara­snill­inga. Þetta land getur af sér gott fólk. Við eigum eftir tvö gigg hér í landi á þessum túr, í dag og á morgun, en ég vona svo sann­ar­lega að við komum hingað til Kraká strax á næsta ári.

Varsjá á morgun. Klukkan er 1.43 og við erum að leggja af stað. Allir í koju nema ég, litli skítur og Jón Geir. Og vit­an­lega Robert. Til Varsjár eru sirka fimm tímar segir Robert mér. Og nú fær­ist rútan. Ég ætla að sjá til hvort ég set í mig meira af vítamín­inu eða þruma mér í koju.

Meist­ar­legt dags­ins: Besta gigg heims­ins.

Sköll dags­ins. Ég fór inn á stað­ar­kló­settið til að pissa eftir að Elu­veitie voru búin að spila. Þar inni var drulla upp á miðjan skó­sóla en ég hugg­aði mig við þá stað­reynd að ég væri í nokkuð þéttum Converse-skóm. Þegar ég ösl­aði út sá ég að vinstri skóreimin var laus.

Viðbót klukkan 1.50: Flexi er með flensu og kvart­aði undan kulda í koj­unni. Robert leysti það mál með að sækja lít­inn raf­magns­ofn í eitt­hvert leyni­hólf. Sá er nú stað­settur á miðjum gang­inum hvar við sofum. Og núna rétt í þessu skreið Böbbi úr neðstu koju rétt til að bjarga lífi sínu sökum ofsa­hita. Okkur verður mis­heitt í nótt. Ég er heit­fengur og sef í efstu koju. Ætli ég setji ekki í mig svo­lítið af vítamínum og fresti koju­ferð aðeins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár