Veðrið gengið niður í bili, björgunarsveitir búast við hvelli í kvöld

Björg­un­ar­sveitir á Suður- og Suð­vest­ur­landi hafa lokið verk­efnum sínum í bili, en veður hefur gengið tölu­vert niður á Suð­vest­ur­horni lands­ins síð­asta klukku­tím­ann eða svo.

Dagurinn hefur verið eril­samur hjá björg­un­ar­sveit­ar­mönnum í dag. Fyrstu hjálp­ar­beiðn­irnar fóru að streyma inn í kringum hádegið, að því er fram kemur í frétt Lands­bjargar. Flest verk­efnin voru á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þar sem hátt í sex­tíu björg­un­ar­sveit­ar­menn hafa verið að störfum, og á Suð­ur­nesjum, þar sem þrjá­tíu björg­un­ar­sveit­ar­menn hafa sinnt útköllum í dag.

Ólöf Snæhólm Bald­urs­dóttir, upp­lýs­inga- og kynn­ing­ar­full­trúi Lands­bjargar, segir í sam­tali við Kjarnann að björg­un­ar­sveit­ar­menn hafi verið sendir heim til að hvíla sig og nær­ast, en eins og fram hefur komið er von á miklu óveðri síðar í kvöld. Hún segir á annað hund­rað björg­un­ar­sveit­ar­menn í við­bragðs­stöðu vegna veð­urs­ins sem sé í vændum.

Verkefni björg­un­ar­sveit­anna í dag hafa verið af ýmsum toga, meðal ann­ars vegna lausra þak­platna og klæðn­inga, fjúk­andi girð­inga og sorp­tunna, og þá hafa gluggar brotnað og hurðar fokið upp. Þá hafa björg­un­ar­sveit­ar­menn þurft að sinna útköllum þar sem fjúk­andi trampólín koma við sögu, þrátt fyrir fjölda við­var­anna um að fólk hugi sér­stak­lega að því að festa þau niður.

Að sögn upp­lýs­inga- og kynn­ing­ar­full­trúa Lands­bjargar hafa engin stór atvik komið upp til þessa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár