Fréttamaðurinn Björn Malmquist á leið til Afganistan í hálft ár

Frétta­mað­ur­inn Björn Malmquist hefur ráðið sig tíma­bundið til starfa hjá Atl­ants­hafs­banda­lag­inu (NATO), og heldur til Afganistan í jan­úar þar sem hann mun starfa sem fjöl­miðla­full­trúi næstu mán­uði.

Björn verður stað­settur í her­stöð fjöl­þjóða­hers­ins í höf­uð­borg Afganistan, Kabúl, en eins og kunn­ugt er stendur til að draga úr hern­að­ar­legu umfangi í Afganistan frá og með næstu ára­mótum.

„Ég skráði mig fyrir nokkrum árum hjá Frið­ar­gæsl­unni og gaf þá til kynna að ég væri til­bú­inn í verk­efni af þessu tagi,“ segir Björn Malmquist í sam­tali við Kjarnann. „Ég fékk svo sím­tal fyrir nokkrum vikum þar sem ég var spurður hvort ég væri til í þetta. Eftir nokkra umhugsun og sam­tal við fjöl­skyld­una ákvað ég að slá til, enda spenn­andi verk­efni sem ég hlakka mikið til að takast á við.“

Þrír Íslend­ingar eru nú starf­andi í Kabúl á vegum utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, einn jafn­rétt­is­full­trúi og tveir sem starfa á flug­vell­inum í borg­inni, og mun Björn því bæt­ast í þeirra hóp. Dvöl hans í Kabúl verður á vegum íslensku frið­ar­gæsl­unnar, en í dag eru ell­efu frið­ar­gæslu­liðar á vegum íslenskra stjórn­valda að störfum erlendis, flestir hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum í Mið­aust­ur­löndum.

Eins og áður segir mun Björn hefja störf á fjöl­miðla­deild alþjóð­aliðs NATO í jan­úar, á vegum utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, en hann heldur utan til Brussel í næstu viku til að und­ir­búa sig undir ver­una í Afganistan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár