Björgunarsveitir kallaðar út vegna óveðurs

Björg­un­ar­sveitir eru nú að störfum víða á Suður- og Suð­vest­ur­landi. Þetta kemur fram í frétt á heima­síðu Lands­bjargar. Þar segir að í kringum hádegið hafi fyrstu beiðn­irnar um aðstoð vegna óveð­urs­ins borist, í Vest­manna­eyjum og Grinda­vík. Síðan þá hafa björg­un­ar­sveitir á Suð­ur­nesjum, Hellu, Árborg, Vogum og höf­uð­borg­ar­svæð­inu verið kall­aðar út.

Verkefni björg­un­ar­sveit­anna eru af ýmsum t0ga, meðal ann­ars vegna lausra þak­platna og klæðn­inga, fjúk­andi girð­inga og sorp­tunna, og þá hafa gluggar brotnað. Þá hafa björg­un­ar­sveit­ar­menn þurft að sinna útköllum þar sem fjúk­andi trampólín koma við sögu, þrátt fyrir fjölda við­var­anna um að fólk hugi sér­stak­lega að því að festa þau niður.

Bless­un­ar­lega hafa engin stór atvik komið upp, að því er fram kemur í frétt Lands­bjargar.

Flestar aðstoð­ar­beiðn­irnar hafa komið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þar sem hátt í 60 björg­un­ar­sveit­ar­menn eru að störfum, og á Suð­ur­nesjum þar sem 30 björg­un­ar­sveit­ar­menn sinna hjálp­ar­beiðnum.

Þá kemur fram í frétt hjá mbl.is að tölu­verð röskun hafi orðið á milli­landa­flugi frá Kefla­vík­ur­flug­velli í dag vegna veð­urs­ins. En nú þegar hefur flugum Icelandair til og frá London, Ósló og Stokk­hólmi verið aflýst, sem og leiguflugi flug­fé­lags­ins til Vín­ar­borgar.

Að sögn Guðjóns Arn­gríms­sonar, upp­lýs­inga­full­trúa Icelandair, eru um fimmtán hund­ruð flug­far­þegar í vand­ræðum vegna þessa, bæði hér á landi og erlendis. Þá hafa sömu­leiðis orðið seink­anir á fjölda fluga hjá Icelandair.

WOW air hefur sömu­leiðis fellt niður flug sem átti að fara til Lundúna og Berlínar í dag, en vél félags­ins frá Kaup­manna­höfn gat ekki lent í Keflavík og var því snúið til Akur­eyrar þar sem hún lenti heilu og höldnu í dag.

Þá hefur öllu inn­an­lands­flugi sömu­leiðis verið aflýst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár