Svipmyndir frá fárviðrinu sem gekk yfir landið árið 1991

Veð­ur­stofan varar við miklu óveðri sem nú gengur yfir landið. Veður á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur farið stig­versn­andi á und­an­förnum klukku­tímum, en veðrið mun halda áfram að versna og ná hámarki í kvöld og nótt á suð­vest­ur­horni lands­ins.

Flug­fé­lag Íslands hefur aflýst öllu inn­an­lands­flugi, og þá hafa ein­hver milli­landa­flug frá Kefla­vík­ur­flug­velli sömu­leiðis verið aflýst. Flug­far­þegar í Leifs­stöð, sem Kjarninn hefur talað við, segja að flug­stöðin nötri í mestu vind­hvið­unum. Björg­un­ar­sveitir eru í við­bragðs­stöðu vegna óveð­urs­ins sem er í vændum, og Veð­ur­stofan brýnir fyrir fólki að festa niður allt laus­legt, sem getur fokið, og vera helst ekki á ferli.

[caption id="attachment_13288" align="align­right" width="768"] Mynd tekin úr brott­far­ar­sal Leifs­stöðvar nú rétt í þessu.[/caption]

Hægt er að fylgj­ast með fram­vindu storms­ins hér.

Lands­menn eiga ekki að venj­ast slíkum veð­ur­ham og er á leið­inni, en spáð hefur verið að hann muni verða sam­bæri­legur þeim sem gekk yfir landið árið 1991, en þá var sömu­leiðis um suð-vestan storm að ræða. Þá varð eitt mesta tjón sem orðið hefur hér á landi í einu óveðri, og björg­un­ar­sveitir víða um land stóðu í ströngu.

Hægt er að rifja upp ofsa­veðrið sem þá gekk yfir landið með því að horfa á frétta­an­nál Rík­is­út­varps­ins frá árinu 1991, á Youtube. Upp­rifjun Rík­is­út­varps­ins hefst á fjórðu mín­útu þátt­ar­ins. Sjón er sögu rík­ari.

http://youtu.be/-eyNf0rmK5E

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár