Óveður í aðsigi - Veðurstofan sendir frá sér viðvörun

Búist er við suð­austan stormi, með­al­vind meiri en tutt­ugu metra á sek­úndu (m/s), eftir hádegi á morgun. Búist er við suð­vestan stormi annað kvöld og sums staðar ofsa­veðri um landið Vestan- og Norð­an­vert, það er með­al­vindur verði meiri en 28 m/s. Veð­ur­stofa Íslands varar sér­stak­lega við veðr­inu á vef sínum. „Spáð er ill­viðri eft­ir há­degi á sunnu­dag­inn og fram á mánu­dag og engu ferða­veðri,“ seg­ir í til­kynn­ingu frá veður­fræð­ing­um Veður­stofu Íslands.

Bú­ast má við hættu­leg­um vind­hviðum við fjöll eft­ir há­degi á morg­un (jafn­vel yfir 50 m/​s þegar verst læt­ur) og engu ferða­veðri.

Á morg­un er út­lit fyr­ir vax­andi suð­aust­an­átt, meðal­vind­hraði víða á bil­inu 18-25 m/​s eft­ir há­degið. Vind­hviður geta náð yfir 40 m/​s vest­an og norðan und­ir fjöll­um á Vest­ur­landi, til dæm­is und­ir Hafn­ar­fjalli. Suð­aust­an­átt­inni fylg­ir rign­ing og er út­lit fyr­ir tals­vert eða mikið úr­komu­magn á suður­helm­ingi lands­ins.

Nær há­marki annað kvöld


Um klukkan níu annað kvöld er út­lit fyr­ir að veðrið nái há­marki suð­vest­an­lands með suð­vest­an 20-30 m/​s, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Veðstofu Íslands. Up­p­úr mið­nætti fær­ir þessi veð­ur­hæð sig yfir á Breiða­fjörð, Vest­f­irði, Strand­ir og Norður­land vestra og einnig á Norður­land eystra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár