Landsbankinn seldi jörð á 46 milljónir, helmingur nú til sölu á 45 milljónir

Lands­bank­inn seldi jörð­ina Fljóts­hólar 2 og 3 í Flóa­hreppi til Ragnars Stef­áns­sonar og Sól­veigar Bjarkar Ein­ars­dóttur á 46 millj­ónir króna í októ­ber árið 2012. Þetta kemur fram í kaup­samn­ingi vegna jarð­ar­innar, sem Kjarninn hefur undir höndum. Bruna­bóta­mat jarð­ar­innar hljóðar upp á 50,5 millj­ónir króna.

Nú er helm­ings­hlutur jarð­ar­innar, sem er sögð ein flottasta frí­stunda­jörð Suð­ur­lands sam­kvæmt fast­eigna­aug­lýs­ingu, aug­lýst til sölu fyrir 45 millj­ónir króna. Jörðin liggur niður að sjó og að Þjórs­ár­ósum vestan megin, og er í 45 mín­útna akst­urs­fjar­lægð frá höf­uð­borg­inni.

Fast­eigna­sal­inn sem ann­ast söl­una á jörð­inni, Sig­ur­björn Á. Frið­riks­son hjá fast­eigna­söl­unni TORG, brást ókvæða við fyr­ir­spurn blaða­manns Kjarnans og vildi engar upp­lýs­ingar veita, og sagði málið blaða­mann­inum óvið­kom­andi.

Þrettán fasteignir, þar af tvö íbúðarhús


Á jörð­inni eru þrettán fast­eignir, svo sem hest­hús, hlöður, sem eru sam­tals um ell­efu hund­ruð fer­metrar að stærð, þar af nýupp­gert 223 fer­metra íbúð­ar­hús sem og annað minna íbúð­ar­hús um sjö­tíu fer­metrar að stærð. Jörðin er 113 hekt­arar að stærð, þar af 23 hekt­arar af rækt­uðu landi og 90 hekt­arar undir bit­haga, en þar að auki eru 250 hekt­arar, aðal­lega sandar og leirur, í sam­eigu með Fljóts­hólum 1 og 4.

Á meðal jarð­hlunn­inda má nefna neta­lagnir og stang­veiði fyrir lax og sjó­birt­ing í Þjórsá, reki og sel­veiði, sil­ungs­veiði í lækjum og síkjum á land­ar­eign­inni, fugla­veiði á leirum, söndum, í túnum og högum. Þá er, sam­kvæmt fast­eigna­aug­lýs­ingu, góður mögu­leiki til hrossa­rækt­unar og tóm­stunda­bú­skapar, svo sem sauð­fjár­rækt­unar og garð­á­vaxta­rækt­unar.

Eins og áður segir keyptu Ragnar Stef­áns­son og Sólveig Björk Ein­ars­dóttir jörð­ina af Lands­bank­anum í októ­ber 2012 fyrir 46 millj­ónir króna. Nokkrum dögum síðar, eða þann 7. des­em­ber 2012, seldu þau 75 pró­sent af jörð­inni til þriggja ein­stak­linga sem eign­uð­ust allir fjórð­ungs­hlut hver. Kaup­verðið er ekki að finna í þing­lýstum gögnum vegna söl­unnar. Þá er Sólveig Björk ekki lengur skráð sem einn eig­enda að jörð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár